Tollverðir haldlögðu fljótandi kókaín

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tollverðir haldlögðu fljótandi kókaín

24.04.2017

Tollverðir í Flugstöð Leifs Eiríkssonar stöðvuðu nýverið smygl á tæpum tveimur lítrum af fljótandi kókaíni til landsins. Efnin fundust, við hefðbundið eftirlit, í farangri tæplega þrítugs karlmanns sem var að koma frá Amsterdam. Vökvanum hafði verið komið fyrir í fjórum brúsum sem merktir voru sem munnskol, sápur og  sjampó. Samtals var um að ræða 1.950 millilítra.

Þetta er í fyrsta sinn sem lagt er hald á fljótandi kókaín hér á landi og er mjög erfitt að greina þessa gerð af kókaíni  við gegnumlýsingar og röntgenmyndatökur.

Málið var kært til lögreglunnar á Suðurnesjum sem hefur farið með rannsókn þess. Hún er nú á lokastigi.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra.

Til baka