Tekinn með kannabiskökur og -sælgæti

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tekinn með kannabiskökur og -sælgæti

15.05.2017

Karlmaður sem tollverðir stöðvuðu nýverið við hefðbundið eftirlit í Flugstöð Leifs Eiríkssonar reyndist hafa í farangri sínum kökur og sælgæti (hlaup) sem hvoru tveggja innihéldu kannabisefni. Maðurinn var að koma frá Amsterdam þegar hann var stöðvaður.

Tollgæslan hafði samband við lögregluna á Suðurnesjum og tók hún við málinu. Lögreglumenn mættu á vettvang og játaði maðurinn eign sína á kökunum og sælgætinu. Málið er í hefðbundnum farvegi. 

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra. 

Til baka