Amfetamínvökvinn var í 23 plastflöskum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Amfetamínvökvinn var í 23 plastflöskum

03.11.2017

Amfetamínvökvinn sem tollverðir fundu í Norrænu í byrjun síðasta mánaðar, eins og fram hefur komið í fjölmiðlum,  var falinn í 23 hálfs líters plastflöskum í bensíntanki bifreiðar sem tveir pólskir karlmenn komu með til landsins. Úr vökvanum sem reyndist vera 11.5 lítrar hefði mátt vinna 90 – 100 kíló af amfetamíni.

Tollayfirvöld hér unnu málið í góðu samstarfi við tollgæsluna  í Færeyjum.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar það í samvinnu við lögregluna á Austfjörðum.

Tollstjóri minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann. Einnig má koma ábendingum  um smygl inn á símsvara 5528030 hjá embætti Tollstjóra. 

Til baka