Ferlahúsið og hugmyndir á forsíðu starfsmannavefs
Ferlahúsið
Teymi starfsfólks af öllum sviðum Tollstjóra hefur unnið að því í vetur að betrumbæta gæðastjórnkerfi Tollstjóra. Liður í því er að nota aðferðafræði ferlastjórnunar þar sem starfseminni er skipt upp í nokkur meginferli. Þau eru svo brotin niður í smærri einingar til þess að ná betri yfirsýn. Nú hefur verið birtur afrakstur þessarar vinnu – Ferlahúsið – í hnappi á innra netinu. Ferlahúsið er í stöðugri vinnslu og á engan hátt fullgert heldur mun verða bætt jafnt og þétt inn samþykktum ferlum. Gæðahandbókin mun enn um sinn verða opin en leitast verður við að tengja gæðaskjölin, verklagreglur, vinnulýsingar, gátlista og eyðublöð, við ferlin.
Vonast er til þess að Ferlahúsið:
- auðveldi starfsfólki að finna leiðbeiningar um verklag og skýri og festi í sessi æskilegt verklag og ábyrgðaskiptingu
- auðveldi nýju starfsfólki að tileinka sér starfið
- auðveldi stjórnendum að öðlast yfirsýn yfir starfsemina og að ná fram markmiðum embættisins
Hugmyndahnappur
Samhliða opnun Ferlahússins hefur verið opnaður hugmyndahnappur á innra netinu sem á að auðvelda starfsfólki að koma á framfæri hugmyndum að betrumbótum á starfseminni. Starfsfólk gæðamála á þróunarsviði taka við hugmyndunum og koma þeim á framfæri við viðeigandi svið.
Allar hugmyndir vel þegnar!
Vakni spurningar, vinsamlegast hafið samband við gæðastjóra elin.jonsdottir@tollur.is
Til baka