Nýtt fyrirkomulag – greiðsluseðlar bifreiðagjalda eingöngu birtir rafrænt

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Speglun í vatni

Nýtt fyrirkomulag – greiðsluseðlar bifreiðagjalda eingöngu birtir rafrænt

06.07.2018

Frá og með 1. júlí verða greiðsluseðlar fyrir bifreiðagjöld einstaklinga eingöngu birtir á rafrænu formi. Með þessu má spara 65 milljónir króna árlega og 5 tonn af pappír. Ár hvert hafa verið sendir út um 480 þúsund greiðsluseðlar vegna bifreiðagjalda.  Bifreiðaeigendur geta nú nálgast seðlana í pósthólfinu á www.island.is. og samhliða stofnast krafa í netbanka. 

Greiðsluseðlar til lögaðila, sem taka á móti rafrænum reikningum, verða sendir út rafrænt á XML formi í gegnum skeytamiðlara. Jafnframt birtist reikningur lögaðila í pósthólfinu á www.island.is og sem krafa í netbanka. Þeir lögaðilar sem ekki taka á móti rafrænum reikningum fá undanþágu við næsta gjalddaga og fá senda prentaða reikninga.

Óski bifreiðaeigendur sérstaklega eftir að fá senda útprentaða greiðsluseðla er hægt að hafa samband við Þjónustuver Tollstjóra  í síma 560-0300 eða senda póst á netfangið fyrirspurn@tollur.is.

Álagning bifreiðagjalds fer fram 1. janúar og 1. júlí og er eindagi bifreiðagjalda 15. febrúar og 15. ágúst ár hvert.

Til baka