Nýtt fyrirkomulag – greiðsluseðlar tollalínugjalda eingöngu birtir rafrænt
10.07.2018
Frá og með 1. júlí 2018 verða greiðsluseðlar fyrir tollalínu eingöngu birtir á rafrænu formi.
Greiðsluseðlarnir verða sendir út rafrænt á XML formi í gegnum skeytamiðlara. Jafnframt birtist reikningur í pósthólfinu á www.island.is og sem krafa í netbanka.
Óski viðskiptavinir sérstaklega eftir að fá senda útprentaða greiðsluseðla er hægt að hafa samband við Tollstjóra í síma 560-0300 eða senda póst á netfangið fyrirspurn@tollur.is.
Nánar um tollalínu má sjá hér.
Til baka