Byssusmygl í flutningaskipi

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Borði og bergrisi

Byssusmygl í flutningaskipi

29.08.2018

Tollverðir í Reykjavík fundu í vikunni tvær sundurteknar hálfsjálfvirkar haglabyssur við hefðbundna leit í flutningaskipinu Arnarfelli sem var að koma til Íslands frá Evrópuhöfnum. Byssunum hafði verið komið fyrir í millivegg í einum klefa skipsins. Við frumrannsókn tollvarða á vettvangi játaði einn áhafnarmeðlimur skipsins að hafa komið byssunum fyrir.

Byssusmygl er brot á vopnalögum og hefur tollgæsla sent málið áfram til rannsóknar lögreglu.

Til baka