Breytingar á tollskrá

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Síður úr tollskrá

Breytingar á tollskrá

25.10.2018

Þann 26. október tekur gildi ný útgáfa af tollskrá.  Þetta er útgáfa 2 sem inniheldur breytingar samkvæmt auglýsingu í A-deild stjórnartíðinda nr. 110/2018.  Þessi breyting er smávægileg.  Aðeins eru þetta um þrjár breytingar.  Ís í vörulið 2105 fær ný númer fyrir ís sem inniheldur áfengi.  Einnig bætast við númer fyrir vörur sem innihalda nikótín og vökva fyrir rafrettur í vörulið 3824.  Að lokum fá rafrettur sér tollskrárnúmer í vörulið 8543.

Veftollskráin uppfærist á miðnætti en pdf útgáfa af tollskránni verður aðgengileg á vefnum eftir helgi. 

Fyrir þá sem eiga skrána útprentaða þá er ekki nauðsynlegt að prenta út alla skrána heldur er í raun nóg að prenta út og skipta um eftirfarandi síður:

 

Bls. 1-2

Bls. 99-100

Bls. 183-184

Bls. 399-400

 

Fjórar blaðsíður í allt.

 

Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði
Tollskrárlyklar, sem taka gildi 26. október 2018 eru  aðgengilegir á vef Tollstjóra: http://www.tollur.is/tollskrarlyklar 

 

Til baka