Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993.

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Stjórnartíðindi

Breyting á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993.

26.11.2018

Þann 21. nóvember 2018 samþykkti Alþingi lög sem fela m.a. í sér ýmsar breytingar á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993. Helstu breytingarnar eru þær að fallið er frá því fyrirkomulagi að leggja vörugjald á ökutæki í tíu gjaldbilum en þess í stað munu ökutæki bera vörugjald miðað við hvert g/km skráðrar koltvísýringslosunar. Aðrar breytingar eru þær að rafknúnar golf- og sendibifreiðar skulu vera undanþegnar vörugjaldi en auk þess var skilgreiningu sendibifreiða breytt. Þá skulu óskráningarskyld ökutæki til vöruflutninga undir 5 tonnum að heildarþyngd bera 13% vörugjald, í stað 30%. 

 

Samkvæmt 1. gr. laganna, sem tekur gildi 1. janúar nk., er hlutfall vörugjalds á hvert g/km skráðrar koltvísýringslosunar breytilegt eftir því hvaða aðferð var beitt við skráningu koltvísýringslosunar viðkomandi ökutækis.  Á sama hátt breytir 3. gr. laganna, sem einnig tekur gildi 1. janúar nk., hvernig leggja ber vörugjald á ökutæki samkvæmt undanþáguflokki 5. gr. laga nr. 29/1993.

Með 2. gr. laganna, sem tekur gildi við birtingu laganna, er skilgreiningu sendibifreiða skv. g-lið 2. tl. 4. gr. laga nr. 29/1993 breytt á þann veg að Sendibifreiðar með sambyggt stýrishús og flutningsrými, eftir atvikum búnar farþegasætum eða sætisfestingum fyrir allt að tvo farþega auk ökumanns í stýrishúsi en engum slíkum í farmrými og flutningsrými, sem eru ætlaðar til vöruflutninga og eru undir 5 tonnum að leyfðri heildarþyngd skulu bera 13% vörugjald. Þá er í 2. gr. einnig að finna ákvæði þess efnis að rafknúnar golfbifreiðar og rafknúnar sendibifreiðar skv. ofangreindri skilgreiningu skulu vera undanþegnar vörugjaldi. Þá er í d-lið 2. gr. laganna kveðið á um að ökutæki ætluð til vöruflutninga, að heildarþyngd 5 tonn eða minna, sem ekki eru skráningarskyld samkvæmt umferðarlögum, skulu bera 13% vörugjald. Síðastnefnda breytingin mun einkum hafa áhrif á dembara í tollskrárnúmeri 8704.1001.

Að lokum er í 4. og 5. gr. laganna að finna bráðabirgðarákvæði sem ætlað er að gilda fram að áramótum og taka á þeim vanda ef ökutæki eru flutt til landsins sem eingöngu eru með skráða koltvísýringslosun  samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni eða með ákvarðaða losun samkvæmt evrópsku aksturslotunni og samræmdu prófunaraðferðinni. Ákvæðin fela í sér lækkun á koltvísýringslosun um ákveðnar prósentur.

Frá og með gildistöku laganna og til áramóta skulu þeir innflytjendur sem eru að flytja inn ökutæki sem eru eingöngu með skráða koltvísýringslosun  samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni eða með ákvarðaða losun samkvæmt evrópsku aksturslotunni og samræmdu prófunaraðferðinni setja undanþágulykilinn „UND LÖT30“ í reit 14 á aðflutningsskýrslu til þess að njóta hinnar tímabundnu lækkunar á koltvísýringslosun. Í slíkum tilvikum eiga innflytjendur einnig að tollflokka viðkomandi ökutæki á aðflutningsskýrslu eftir því hver losunin er miðað við þá lækkun sem 4. og 5. gr. laganna kveða á um.

Hlekkur á lögin: https://www.althingi.is/altext/149/s/0499.html

Til baka