Jólagjafir frá útlöndum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Jólagjafir frá útlöndum

04.12.2018

Nú styttist til jóla og margir eiga von á pakka frá vinum eða ættingjum sem búsettir eru erlendis.

Tollstjóri vill benda á að í ákveðnum tilvikum þarf ekki að greiða aðflutningsgjöld af jólagjöfum, sem sendar eru til landsins. Þetta á við um þær gjafir sem sendandi, búsettur erlendis, hefur meðferðis til Íslands eða sendir hingað og ef verðmæti hverrar gjafar er ekki meira en 13.500 krónur. Sé verðmæti gjafarinnar meira þarf að greiða aðflutningsgjöld af þeirri upphæð sem er umfram 13.500 krónur. Sé gjöfum til fleiri en eins einstaklings pakkað saman er mikilvægt að það komi fram í fylgiskjölum.

Þessar reglur gilda hinsvegar ekki um innflutning í atvinnuskyni né gjafir sem einstaklingar búsettir á Íslandi panta frá útlöndum. Vöruinnflutningur er ekki undanþeginn aðflutningsgjöldum. Þá gilda gjafareglur ekki um gjafir sem einstaklingar búsettir á Íslandi kaupa erlendis og koma með til landsins.  Slíkar gjafir geta þó verið undanþegnar aðflutningsgjöldum, sem hluti af tollfríðindum ferðamanns, sem eru samtals kr. 88.000 og eiga við um allan varning sem einstaklingurinn kemur með til landsins eða kaupir í tollfrjálsri verslun.

Nánari upplýsingar um innflutning á gjöfum

Information on gifts

Til baka