Ný Tollalína

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Hluti mósaík listaverksins á Tollhúsinu

Ný Tollalína

26.02.2019

Tollstjóri býður nú uppá nýja og endurbætta Tollalínu, sem verður gjaldfrjáls fyrst um sinn. Viðskiptavinir eru hvattir til að hefja notkun á henni sem allra fyrst. 

Nánari upplýsingar um Tollalínuna má finna á slóðinni: https://www.tollur.is/atvinnurekstur/rafraen-thjonusta/tollalinan
  
Forráðamenn fyrirtækja veita starfsfólki aðgang í umboðsmannakerfi island.is en ekki í Tollalínunni líkt og áður. Nota verður Íslykil fyrirtækis til þess. 
  
Ekki verður lengur tekið við umsóknum um aðgang að gömlu Tollalínunni. Gömlu Tollalínunni verður síðan lokað 1. júní 2019.
  
Hlekkur til að tengjast nýju Tollalínunni: tollalinan.tollur.is

Til baka