Breytingar á skuldfærslu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum vegna ársins 2020

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Stjórnartíðindi

Breytingar á skuldfærslu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum vegna ársins 2020

17.04.2020

Áríðandi tilkynning vegna EDI/SMT-tollafgreiðslu - breytingar á skuldfærslu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum, gjalddögum; hefur áhrif á hugbúnað innflytjenda ökutækja og tollmiðlara fyrir tollskýrslugerð og tollafgreiðslu

Tekur gildi 17. apríl 2020

Skv. reglugerð nr. 336/2020 hafa tekið gildi breytingar á reglum um skuldfærslu vörugjalda af skráningarskyldum ökutækjum. Hingað til hefur innheimtu gjaldsins verið frestað, annars vegar fram að nýskráningu ökutækis hjá Samgöngustofu (þó ekki lengur en 12 mánuð) eða hins vegar til 15. næsta mánaðar eftir tollafgreiðslu.  Í fyrrnefnda tilvikinu hefur þurft að greiða vörugjaldið við skráningu en ekki í hinu síðarnefnda. Eftir breytinguna verður gjaldið eingöngu skuldfært skv. fyrrnefndu reglunni, þ.e. frestur greiðslu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum er fram að skráningu ökutækis, þó ekki lengur en 12 mánuði. Gera þarf breytingar á hugbúnaði sem notaður er við EDI/SMT-tollafgreiðslu innfluttra vara hjá innflytjendum ökutækja og tollmiðlurum ef fyrrnefnd skuldfærsluregla er ekki þegar til staðar í hugbúnaðinum. Breytingunum á skuldfærslu vörugjaldsins er lýst hér að neðan og áhrif þeirra á EDI/SMT-tollafgreiðsluna o.fl. Breytingarnar gilda um neðangreind tilvik. Önnur tilvik skuldfærslu aðflutningsgjalda eru óbreytt.

Þegar EDI/SMT-aðflutningsskýrsla fær tollafgreiðslu hjá tollyfirvöldum er EDI-skeyti, nefnt CUSTAR skeyti, sent til innflytjanda eða e.a. tollmiðlara, nefnt skuldfærslutilkynning, sem lesið er inn í hugbúnað hans. Í skeytinu eru m.a. upplýsingar um álögð og skuldfærð gjöld, sundurliðuð niður á hvert tollskrárnúmer/línu í skýrslunni. Fyrir hvert gjald á tollskrárnúmeri eru upplýsingar um hvernig gjald er skuldfært; skuldfærslukóði, S1, S2 o.fl. kóðar, sem gefa til kynna gjalddaga tolls/gjalds. Í hugbúnaði innflytjanda/tollmiðlara eru síðan töflur sem túlka þessa kóða miðað við tollafgreiðsludag í CUSTAR skeytinu. Hver skuldfærslukóði segir til um uppgjörstímabil og eindaga gjalda, sem skuldfærð eru á uppgjörstímabili skv. reglu kóðans. Þetta getur síðan haft áhrif á birtingu upplýsinga á skjá, útprentunum í hugbúnaði o.fl.

Innflytjendur ökutækja og tollmiðlarar með SMT/EDI tollafgreiðslukerfi eru hvattir til að hafa samband við sína þjónustuaðila (eða e.a. tölvudeild eigin fyrirtækis) vegna breytinganna.

Breytingarnar varða kóða, sem hefur verið í gildi við tollafgreiðslu og skuldfærslu vörugjalds af skráningarskyldum ökutækjum:

S1 kóði, vörugjald af ökutækjum skuldfært á 1 mánaðar uppgjörstímabil

Frá og með 17. apríl 2020 verður neðangreindur skuldfærslukóði í CUSTAR skeytum í stað S1 við tollafgreiðslu skráningarskyldra ökutækja:

S6 (kemur í stað S1) kóði, vörugjald af ökutækjum skuldfært á 12 mánaða uppgjörstímabil eða fram að nýskráningu:
 Uppgjörstímabil er 12 mánuðir.
 Eindagi gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu er við nýskráningu ökutækis (en þó ekki lengur en í tólf mánuði).
 Dæmi: Eindagi vörugjalds skuldfært í apríl 2020  er 1. maí 2021; í maí 2020 er 1. júní 2021 o.s.frv.
 Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist gjalddagi á næsta virkan dag á eftir.

Yfirlit yfir skuldfærslureglur, uppgjörstímabil og eindaga aðflutningsgjalda árið 2020

Nánari upplýsingar
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollyfirvalda hjá Skattinum, sími 560 0315
Um tæknilega framkvæmd: Tæknisvið Skattsins ut[hja]tollur.is eða þjónustuvakt: 560 0505

Til baka