Breytingar á greiðslufresti aðflutningsgjalda og gjalddögum vegna ársins 2021

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Seðlar og mynt

Breytingar á greiðslufresti aðflutningsgjalda og gjalddögum vegna ársins 2021

07.12.2020

Frá 1. maí 2020 hefur verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum (s.k. tollkrít), sbr. frétt á vef Skattsins 2. apríl 2020.  Frá og með 1. janúar 2021 taka fyrri reglur um greiðslufrest og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi.

Innflytjendur og tollmiðlarar með SMT/EDI tollafgreiðslukerfi eru hvattir til að hafa samband við sína þjónustuaðila (eða e.a. tölvudeild eigin fyrirtækis) vegna breytinganna.

Frá og með 1. janúar 2021 verður neðangreindur skuldfærslukóði sendur aftur í CUSTAR skeytum:

S2 kóði, almenna skuldfærslureglan:
 Uppgjörstímabil er tveir mánuðir, janúar-febrúar, mars-apríl o.s.frv.
 Eindagi gjalds sem skuldfært er skv. þessari reglu er 15. næsta mánaðar eftir lok uppgjörstímabils.
 Dæmi: Eindagi jan-feb 2021 tímabils er 15. mars 2021 
 
Yfirlit yfir skuldfærslureglur, uppgjörstímabil og eindaga aðflutningsgjalda árið 2021
 
Nánari upplýsingar
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollyfirvalda hjá Skattinum, upplysingar[hja]skatturinn.is, sími 560 0315
Um tæknilega framkvæmd: Tæknisvið Skattsins ut[hja]skatturinn.is eða þjónustuvakt: 560 0505

Til baka