Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl.

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Síður úr tollskrá

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl.

28.12.2020

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl., vegna tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2021.
Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.
Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2021 nema annað sé tekið fram.

1. Kolefnisgjöld á eldsneyti, K* gjöld
Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2    Kolefnisgjald. Gas- og díselolía:  11,75 kr./lítra
K3    Kolefnisgjald. Bensín:  10,25 kr./lítra
K5    Kolefnisgjald. Brennsluolía:  14,45 kr./kg.
K6    Kolefnisgjald. Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni:  12,85 kr./kg.
Heimild: 1. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021. 

2. Vörugjald af bensíni, LB gjald
Gjaldið verður:
LB    Vörugjald af bensíni: 29,45 kr./lítra
Heimild: 5. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021. 

3. Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld
Gjöldin verða:
C1    Blýlaust bensín: 47,50 kr./lítra
C2    Annað en blýlaust bensín: 50,35 kr./lítra
Heimild: 6. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021. 

4. Olíugjald, C3 gjald
C3    Olíugjald á gas- og dísilolíu og ennfremur á steinolíu til ökutækja: 66,00 kr./lítra
Heimild: 7. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021. 

5. Áfengisgjöld, VX, VY og VZ
Áfengisgjöld verða:
VX    Áfengisgjald – Öl o.fl.: 128,80 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25% 
VY    Áfengisgjald – Vín: 117,30 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25%
VZ    Áfengisgjald – Annað áfengi: 158,75 kr./cl. af vínanda umfr. 0%  
Heimild: 2. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021.

6. Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2
Tóbaksgjöld verða:
T1    Tóbaksgjald – vindlingar:  664,25 kr.á hvern pakka; 20 vindlingar
T2    Tóbaksgjald – annað tóbak:  36,90 kr./gramm
Heimild: 4. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021. 

7. Flutningsjöfnunargjöld á olíuvörum (eldsneyti), J* gjöld, felld niður. 
Heimild: Lög nr. 89/2020 um breytingu á lögum um svæðisbundna flutningsjöfnun, nr. 160/2011, með síðari breytingum (niðurlagning flutningsjöfnunarsjóðs olíuvara).

8. Úrvinnslugjöld, B* gjöld
Þessar breytingar eru skv. 32.-35. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021 og breyta lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002

Eftirfarandi breytingar verða á 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. a.
BV    Í stað 15 kr./kg. kemur: 22 kr./kg.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka IV við lögin:
BL    Í stað 40,00 kr./kg. kemur hvarvetna: 50,00 kr./kg.
BL    Í stað 0,70 kr./kg. í tollskrárnúmerinu 2710.1940 kemur: 0,90 kr./kg.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XII við lögin:
BD    Í stað „360,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9020 kemur: 480,00 kr./kg.
BD    Í stað „600,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9031 kemur: 800,00 kr./kg.
BD    Í stað „1.200,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9032 kemur: 1.600,00 kr./kg.
BD    Í stað „1.440,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9033 kemur: 1.920,00 kr./kg.
BD    Í stað „1.920,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9034 kemur: 2.560,00 kr./kg.
BD    Í stað „2.880,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9035 kemur: 3.840,00 kr./kg.
BD    Í stað „2.880,00 kr./kg“ í tollskrárnúmerinu 3707.9099 kemur: 3.840,00 kr./kg.

Eftirfarandi breyting verður á viðauka XIV við lögin:
BI    Í stað „8,00 kr./kg“ í viðauka XIV við lögin kemur hvarvetna: 18,00 kr./kg.

9. Gjald á flúoraðar gróðurhúsalofttegundir, FL gjald (kr./kg.)
Gjaldið hækkar.  Taxti gjalds er mismunandi eftir tollskrárnúmerum. 
Heimild: 13. gr. laga nr. 129/2009  um umhverfis- og auðlindaskatta og ákvæði til bráðabirgða II sömu laga.

10. Vörugjöld af ökutækjum, M* gjöld, falla niður af neðangreindum tollskrárnúmerum:
8704.9013, 8704.9014, 8704.9016 og 8704.9018.
Heimild: 13. gr. laga nr. 140/2020  um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).

11. Breytingar á gjalddögum uppgjörstímabila vegna skuldfærslu aðflutningsgjalda við tollafgreiðslu; fyrirkomulag fært til fyrra horfs frá og með 1. janúar 2021
Frá 1. maí 2020 hefur verið í gildi tímabundið lengri greiðslufrestur á aðflutningsgjöldum (s.k. tollkrít), sbr. frétt á vef Skattsins 2. apríl 2020
Frá og með 1. janúar 2021 taka fyrri reglur um greiðslufrest og gjalddaga aðflutningsgjalda gildi, sbr. frétt 7. desember.
Yfirlit yfir skuldfærslureglur, uppgjörstímabil og eindaga aðflutningsgjalda árið 2021

12. Undanþáguheimildir
Ný undanþáguheimild tekur gildi 1. janúar 2021: VSKLF undanþágukóði, niðurfelling á virðisaukaskatti við innflutning á lyfjum sem gefin eru ríkinu eða stofnunum þess til nota við meðferð sjúklinga á heilbrigðisstofnunum.
Heimild: 5. gr. laga nr. 141/2020 um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um fjársýsluskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum um tryggingagjald.

Ný undanþáguheimild tekur gildi 1. janúar 2021: LÖT32 undanþágukóði, lækkun á vörugjaldi á ökutæki til vöruflutninga í atvinnuskyni sem eingöngu eru knúin metani eða metanóli.
Heimild: 13. gr. laga nr. 140/2020 um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).

LÖT31 undanþágukóði, lækkun á skráðri CO2 losun húsbifreiða, framlengd og gildir út árið 2021.
Heimild: 14. gr. laga nr. 140/2020 um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld (tryggingagjald o.fl.).

VSKTE undandþágukóði, lækkun virðisaukaskatts vegna innflutnings á tengiltvinnbifreiðum. Hámark niðurfellingar, kr. 960.000, framlengd og gildir út árið 2021.  Jafnframt eru hámörk CO2 losunar tengiltvinnbifreiða, skv. 2. tl. 6. mgr. bráðabirgðaákvæðis XXIV um skilyrði undanþágu, lækkuð.
Heimild: 39. gr. laga nr. 133/2020 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2021 og 4. gr. laga nr. 141/2020 um breytingu á lögum um virðisaukaskatt, lögum um fjársýsluskatt, lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda og lögum um tryggingagjald.

Undanþáguheimild felld úr gildi: L1034 undanþágukóði, flutningsjöfnunargjöld á olíuvörum, fellur úr gildi, sbr. lið 7 hér ofar.

13. Bráðabirgðasamningur um fríverslun Íslands og Bretlands, YQ tegund tolls
Samningurinn tekur gildi um áramót. Kódi tegundar tolls er YQ og landakódi GB, Stóra Bretland (Great Britain). Stofna þarf YQ tegund tolls (kóða) í tollskýrslugerðarhugbúnaði.  Jafnframt verður að fella landakóðann GB úr gildi á E og B tegundum tolls, þ.e. ekki er hægt að óska eftir ívilnun E og B (tegund tolls) á vörur með upprunaland GB frá og með 1. janúar 2021 (nánari upplýsingar eru í frétt á vef Skattsins).
Óheimilt verður að nota tilvísunina "EESVARA" með leyfiskóðanum "MST" við innflutning tiltekinna vara með upprunaland GB (sjá nánar um innflutning matvæla frá EES-svæðinu og vef Matvælastofnunar).

14. Fríverslunarsamningur EFTA og Ekvador, YS tegund tolls
Samningurinn tók gildi 1. nóvember 2020. Kódi tegundar tolls er YS og landakódi EC, Ekvador. Stofna þarf YS tegund tolls (kóða) í tollskýrslugerðarhugbúnaði.

15. Breyting á tollskrá
Breytingin er skv. auglýsingu nr. 149/2020 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda).

16. Reglugerðir um tollkvóta
Reglugerð nr. 1321/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum og unnum kjötvörum frá Bretlandi.
Birt 22. desember 2020.
Gildir frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2021.

Reglugerð nr. 1322/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 22. desember 2020.
Gildir frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2021.

Reglugerð nr. 1323/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá ríkjum Evrópusambandsins.
Birt 22. desember 2020.
Gildir frá 1. janúar 2021 til 30. apríl 2021.

Reglugerð nr. 1324/2020 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 22. desember 2020.
Gildir frá 1. janúar 2021 til 31. desember 2021.

17. Lokun á sjálfvirkri EDI/VEF-tollafgreiðslu
Vegna breytinga á gjöldum og tölvuvinnslu verður lokað fyrir sjálfvirka EDI/VEF-tollafgreiðslu hjá Skattinum frá kl. 14:00 hinn 31. desember 2020 til kl. 12:00 hinn 2. janúar 2021.

18. Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði
Tollskrárlyklar (bæði vegna innflutnings og útflutnings), sem taka gildi 1. janúar 2021, verða aðgengilegir á vef Skattsins 28. desember 2020.

Ábendingar
Útflutningur - Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer, skilmála þess og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar frá Íslandi, sem útflutningsskýrslan tekur til. Sama gildir þegar leiðrétta eða breyta þarf útflutningsskýrslum eftir tollafgreiðslu. 
Innflutningur - Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).

Á vef Skattsins má skoða annars vegar tegundir tolla og hins vegar önnur aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir 1. janúar með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu. Ennfremur fást upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Skattsins.

Nánari upplýsingar
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver tollasviðs Skattsins - upplysingar[hja]skatturinn.is, sími: 560 0315
Um tæknilega framkvæmd: Tæknisvið tollasviðs Skattsins - ut[hja]skatturinn.is eða þjónustuvakt, sími: 560 0505

Til baka