Sterar 2013
Tollgæslan stöðvaði tæplega sjötugan karlmann í Leifsstöð við komu hans til landsins vegna gruns um að hann væri með ólögleg lyf meðferðis. Sá grunur reyndist á rökum reistur, því maðurinn var með um 70 þúsund skammta af sterum og fleiri ólöglegum lyfjum í farangri sínum. Um var að ræða töflur, ambúlur, lyfjatúbur, svo og sprautunálar.