Sameining tollstjóra og ríkisskattstjóra
Vegna COVID19 er afgreiðslutími á Tryggvagötu takmarkaður sjá nánar.
Þann 1. janúar 2020 sameinuðust embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra undir nafninu Skatturinn.
Þann 11. desember 2019 var samþykkt á Alþingi að sameina embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra með það að markmiði að bæta þjónustu og hafa að leiðarljósi sjálfvirknivæðingu og stafræna opinbera þjónustu í starfsemi skatt- og tollyfirvalda.
Innheimta opinberra gjalda á höfuðborgarsvæðinu flutt til ríkisskattstjóra
Þann 1. maí 2019 fluttist innheimta opinberra gjalda á höfuðborgarsvæðinu til Ríkisskattstjóra og á sama tíma urðu breytingar á opnunar- og símatíma Tollstjóra á starfsstöð í Tryggvagötu. Sameiginleg afgreiðsla innheimtusviðs Ríkisskattstjóra og Tollstjóra er í Tollhúsinu Tryggvagötu 19.
Opnunartími afgreiðslu á Tryggvagötu er mánudaga til fimmtudaga kl. 09:00 – 15:30 og föstudaga kl. 09:00 - 14:00.
Þetta hefur þá þýðingu að símsvörun skiptiborðs og þjónustuvers er eingöngu aðgengileg á opnunartíma auk þess sem hvorki er hægt að taka við né afhenda skjöl utan opnunartíma. Afhendingarheimild í þeim tilvikum sem aðflutningsgjöld hafa verið staðgreidd verður ekki gefin út utan opnunartíma þar sem útgáfan krefst aðkomu gjaldkera innheimtusviðs Ríkisskattstjóra. Breytingin mun hins vegar ekki hafa áhrif á fyrirkomulag við rafræna skuldfærslu aðflutningsgjalda á tollkrít.
Opnunartími annarra starfsstöðva Tollstjóra er óbreyttur.
Símanúmer Tollstjóra er: 560 0300
Tölvupóstfang Tollstjóra: upplysingar@tollur.is
Greiðslur á tollskýrslum
Reikningsnúmer: 101-26-85002 kt. 540269-6029
Með greiðslum á tollskýrslum skal ávallt senda skýringu með sendingarnúmerum á netfangið gt@rsk.is.
Sjá einnig: frétt á vef ríkisskattstjóra