Um vefinn og lagalegur fyrirvari

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Um vefinn og lagalegur fyrirvari

Vefir undir léninu tollur.is eru vefir skattsins.

Tilgangur vefjanna er að miðla upplýsingum til og eiga samskipti við viðskiptavini embættisins, almenning, skattgreiðendur, inn og útflytjendur auk þess að miðla upplýsingum til samstarfsembætta og stofnanna, sýslumannsembætta, innheimtumanna ríkissjóðs og starfsmanna skattsins.

Við viljum vita hvað ykkur finnst, hvað betur megi fara, hvað vantar og hverju er ofaukið svaraðu fimm spurningum og hjálpaðu okkur að gera vefinn betri.

Fyrirspurnir um einstaka málaflokka er hægt að senda hér.

 

Lagalegur fyrirvari

Þó stefna embættisins sé að hafa allar upplýsingar sem birtar eru á vefnum réttar er ekki ávallt hægt að ábyrgjast að svo sé. Villur í upplýsingum á vefnum skapa hvorki rétt né skyldu umfram ákvæði laga. Upplýsingum á vefnum kann að vera breytt hvenær sem er án sérstaks fyrirvara eða tilkynningar þar um.

Vinsamlega látið vita um upplýsingar sem kunna að vera rangar með því að senda tölvupóst á vefur[hja]tollur.is.

Ekki er borin ábyrgð á efnisinnihaldi eða áreiðanleika þeirra vefja sem vísað er í með tenglum.

Persónuvernd

Sjá: Um vefinn og lagalegur fyrirvari

Vefkökur

Við notkun vefsins  eru nokkur atriði skráð í svokallaða vefköku (e.cookie), svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið, gerð vafra og stýrikerfis, skjáupplausn og fleira. Þessar upplýsingar eru nýttar við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. til að forgangsraða efni eftir notkun. 

Notendum er bent á að þeir geta stillt vafra sinn þannig að hann láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

Höfundarréttur

Skatturinn áskilur sér höfundarrétt yfir þeim upplýsingum sem fram koma á vef embættsins, nema annað sé sérstaklega tekið fram, annað megi leiða af eðli upplýsinganna eða ákvæði laga mæli slíku í mót. Afritun, dreifing og endurbirting upplýsinga af vefnum, sem háðar eru framangreindum höfundarrétti embættisins, er óheimil nema samþykki þess liggi fyrir. Gestum vefsins er þó heimilt að vista upplýsingar til einkanota og einnig má vísa á og vitna í vefinn sé heimildar getið.

Óheimil notkun

Ekki er leyfilegt að hamstra gögn (e. data harvesting) af vef skattsins. Slík notkun getur valdið óeðlilega miklu álagi á kerfi embættisins og valdið truflunum á þjónustu. 

Leit í vefnum

Á vef skattsins er heilmikið af upplýsingum um embættið og starfsemi þess.

  • Til að auðvelda notendum upplýsingaleit í vefnum er leitarhnappur ávalt til staðar á skjánum.
  • Leitað er í öllum vefnum að orðum eða orðhlutum sem rituð eru í reitinn.
  • Einnig bendum við á veftré þar sem uppbygging vefsins sést vel.

Aðgengi

Skatturinn leggur metnað sinn í að vefir embættisins séu aðgengilegir öllum.

Leitast er við að fylgja staðlinum W3C WCAG 2.0 AA  sjá nánari upplýsingar í vefhandbókinni.

Fyrirvari vegna PDF skjala

  • Ýmis eldri vefkerfi undir léninu tollur.is eru ekki aðgengileg öllum, en gerðar verða kröfur um að nýjar útgáfur þeirra fullnægi skilyrðum um aðgengi.
  • Eyðublöð á pdf formi eru óaðgengileg skjálesurum, stefnt er að því að rafræn eyðublöð embættisins verði aðgengileg í framtíðartölvukerfum þess.
  • Ýmis eldri pdf skjöl kunna að vera óaðgengileg skjálesurum, látið okkur vita ef þið rekist á slík skjöl og við reynum að laga þau.

Gamlir vafrar

Þessi vefur er hannaður fyrir nútíma vafra. Ef hann er notaður með gömlum vafra má búast við að útlit og virkni skili sér ekki til notanda. Mælt er með að notaðar séu nýjustu útgáfur vafra til að skoða vefinn.  

 

Við þiggjum með þökkum allar ábendingar frá notendum vefsins.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir