Tilkynning nr. 4/2004 til innflytjenda vegna breytinga á lögum og reglugerðum

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Tilkynning nr. 4/2004 til innflytjenda vegna breytinga á lögum og reglugerðum

30.06.2004

Umferðarlög
Lög um olíugjald, kílómetragjald o.fl.
Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
Reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins
Lög um eiturefni og hættuleg efni
Reglugerðir um úthlutun á tollkvótum
Flutningsjöfnunargjald á sementi
Flutningsjöfnunargjald á olíuvörum
Lög um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur
Skráningarskírteini innfluttra notaðra ökutækja

Umferðarlög
Þann 18.  júní sl. tók gildi breyting á umferðarlögum nr. 50/1987, með síðari breytingum.  Með lögunum hafa eftirfarandi breytingar verið gerðar á 2. gr. laganna þar sem liðurinn Reiðhjól orðast nú svo:

  • Ökutæki, sem knúið er áfram með stig- eða sveifarbúnaði og eigi er eingöngu ætlað til leiks.
  • Vélknúinn hjólastóll, sem eigi er hannaður til hraðari aksturs en 15 km á klst. og verður einungis ekið hraðar með verulegri breytingu.
  • Lítil vél- eða rafknúin ökutæki, sem hönnuð eru til aksturs á hraða frá 8 km og upp í 15 km á klst.  Undir þessa skilgreiningu fellur m.a. vélknúið hlaupahjól sem knúið er stigbretti, er á hjólum og með stöng að framan sem á er stýri.  Slíkum farartækjum má ekki aka á akbraut.

Þau tollskrárnúmer sem falla undir c-lið framangreinds ákvæðis eru 8711.1000 og 8711.9091.

Við liðinn Torfærutæki bætist nýr stafliður sem orðast svo:

Vélknúið ökutæki sem aðallega er ætlað til vöruflutninga utan vega, er a.m.k. á fjórum hjólum og innan við 550 kg að eigin þyngd án rafgeyma sé það rafknúið.

Sjá nánar A-deild Stjórnartíðinda.

Lög um olíugjald, kílómetragjald o.fl.
Þann 1. júlí 2005 taka gildi lög nr. 87/2004 um olíugjald, kílómetragjald o.fl.. Frá og með sama tíma falla úr gildi lög nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar. Ákvæði þeirra laga skulu þó gilda um þungaskatt sem greiða á af notkun ökutækja til 1. júlí 2005. 

Með gildistöku laganna skal greiða í ríkissjóð vörugjald af gas- og dísilolíu sem flokkast í tollskrárnúmer 2710.1930 og nothæf er sem eldsneyti á ökutæki. Í lögunum er vörugjald á olíu nefnt olíugjald.
 
Gjaldskylda skv. framangreindu nær einnig til olíu í öðrum tollskrárnúmerum sem blönduð hefur verið gjaldskyldri olíu, enda séu blöndurnar nothæfar sem eldsneyti á ökutæki.

Fjárhæð olíugjalds skal vera 45 kr. á hvern lítra af olíu.

Tollstjórar annast álagningu og innheimtu olíugjalds af gjaldskyldri olíu sem aðrir en þeir sem skráðir hafa verið skv. 3. gr. laganna flytja til landsins. Ríkisskattstjóri annast álagningu olíugjalds á þá sem skráningarskyldir eru skv. 3. gr. vegna sölu þeirra og eigin nota á gjaldskyldri olíu.

Gjaldskyldir aðilar samkvæmt lögunum eru (3. gr.):

  1. þeir sem framleiða eða stunda aðvinnslu olíu sem gjaldskyld er skv. 1. gr.,
  2. þeir sem flytja inn, til endursölu eða eigin nota, olíu sem gjaldskyld er skv. 1. gr.,
  3. þeir sem kaupa olíu innan lands til endursölu.

Ríkisskattstjóri heldur skrá yfir gjaldskylda aðila.  Um undanþágur og endurgreiðslur vísast til 5. og 6. gr. laganna.  Beiðnir um endurgreiðslu skulu afgreiddar af ríkisskattstjóra.

Um uppgjör og innheimtu vísast til 9.-12. gr. laganna.
Gjaldskyldir aðilar, sem hlotið hafa skráningu skv. 3. gr., skulu greiða olíugjald af gjaldskyldri olíu fyrir hvert uppgjörstímabil miðað við sölu eða afhendingu og eigin notkun. Þeir sem flytja inn gjaldskylda olíu til eigin nota skulu greiða olíugjald við tollafgreiðslu.

Við uppgjör olíugjalds má draga frá fjárhæð sem nemur sannanlega töpuðum útistandandi kröfum til greiðslu olíugjalds sem áður hefur verið skilað í ríkissjóð.

Til gjaldskyldrar sölu eða afhendingar telst ekki:

  1. olía sem afhent er öðrum gjaldskyldum aðila,
  2. olía sem flutt er úr landi,
  3. olía sem sannanlega hefur farið forgörðum vegna leka, eldsvoða eða rýrnunar af öðrum sambærilegum ástæðum.

Uppgjörstímabil olíugjalds er einn mánuður. Gjalddagi er fimmtándi dagur annars mánaðar eftir lok uppgjörstímabils. Beri gjalddaga upp á helgidag eða almennan frídag færist hann yfir á næsta virka dag á eftir. Eigi síðar en á gjalddaga skulu gjaldskyldir aðilar, sem hlotið hafa skráningu skv. 3. gr., ótilkvaddir skila innheimtumanni ríkissjóðs skýrslu, olíugjaldsskýrslu, yfir magn gjaldskyldrar og gjaldfrjálsrar olíu á uppgjörstímabilinu og standa skil á greiðslu olíugjaldsins.

Kílómetragjald
Greiða skal kílómetragjald af eftirtöldum ökutækjum:

  1. bifreiðum sem skráðar eru hér á landi sem eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd, þó ekki af bifreiðum sem ætlaðar eru til fólksflutninga,
  2. eftirvögnum sem skráðir eru hér á landi og eru 10.000 kg eða meira að leyfðri heildarþyngd,
  3. bifreiðum og eftirvögnum, sbr. 1. og 2. tölul., sem skráð eru erlendis og flutt hingað til lands.

Tollstjóri skal við komu og brottför ökutækis lesa af ökumæli þess og ákvarða kílómetragjald í samræmi við ekinn kílómetrafjölda.

Gjaldskylda samkvæmt framangreindu hvílir á skráðum eiganda ökutækis á álestrardegi eða afskráningardegi hafi ökutæki verið afskráð. Hafi orðið eigendaskipti á ökutæki án þess að það hafi verið tilkynnt til skráningar hvílir gjaldskyldan jafnframt á nýjum eiganda. Ef annar aðili en skráður eigandi hefur umráðarétt yfir skráningarskyldu ökutæki ber hann óskipta ábyrgð með skráðum eiganda á greiðslu kílómetragjalds. Skylda til greiðslu kílómetragjalds af ökutæki sem skráð er erlendis hvílir á innflytjanda þess.

Kílómetragjald af gjaldskyldum bifreiðum skv. 1. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sem hér segir:

Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg

Kílómetragjald,
kr.

Leyfð heildarþyngd
ökutækis, kg

Kílómetragjald,
kr.

10.000–11.000

0,29

21.001–22.000

6 ,89

11.001–12.000

0,89

22.001–23.000

7 ,49

12.001–13.000

1,49

23.001–24.000

8 ,09

13.001–14.000

2,09

24.001–25.000

8 ,69

14.001–15.000

2,69

25.001–26.000

9 ,29

15.001–16.000

3,29

26.001–27.000

9 ,89

16.001–17.000

3,89

27.001–28.000

10 ,49

17.001–18.000

4,49

28.001–29.000

11 ,09

18.001–19.000

5,09

29.001–30.000

11 ,69

19.001–20.000

5,69

30.001–31.000

12 ,29

20.001–21.000

6,29

31.001 og yfir

12 ,89

Kílómetragjald af gjaldskyldum eftirvögnum skv. 2. tölul. 1. mgr., sbr. 3. tölul., skal vera sama fjárhæð kílómetragjaldsins og kveðið er á um í 3. mgr.

Eigendur eða umráðamenn ökutækja til sérstakra nota, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 4. gr., skulu greiða kílómetragjald skv. 3. mgr.

Upphæð kílómetragjalds ræðst af gjaldþyngd ökutækis. Gjaldþyngd ökutækis skal vera leyfð heildarþyngd þess, sbr. ákvæði reglugerðar nr. 528/1998, um stærð og þyngd ökutækja. Samanlögð gjaldþyngd samtengdra ökutækja skal vera að hámarki 40.000 kg fyrir fimm ása samtengd ökutæki og 44.000 kg fyrir sex ása samtengd ökutæki.

Kílómetragjald af bifreiðum og eftirvögnum sem skráð eru erlendis og flutt hingað til lands skal greiða við brottför bifreiðar eða vagns úr landi.

Álestrartímabil eru frá 1. desember til 15. desember og frá 1. júní til 15. júní ár hvert. Eigandi eða umráðamaður ökutækis sem kílómetragjald er greitt af skal án sérstakrar tilkynningar koma með ökutæki til álestraraðila á álestrartímabili og láta lesa á og skrá stöðu ökumælis.

Gjalddagi kílómetragjalds fyrir álestrartímabilið 1. desember til 15. desember er 1. janúar þar á eftir og gjalddagi kílómetragjalds fyrir álestrartímabilið 1. júní til 15. júní er 1. júlí þar á eftir. Við eigendaskipti ökutækis er gjalddagi og álestrardagur sá sami, sbr. 21. gr. Eindagar skattsins eru 15. febrúar og 15. ágúst.

Um ákvörðun kílómetragjalds vísast nánar til 15. gr. laganna.

Hafi gjöld samkvæmt lögunum ekki verið greidd á gjalddaga skal lögreglustjóri að kröfu tollstjóra stöðva ökutækið hvar sem það fer og taka skráningarmerki þess til geymslu.

Ef gjaldskylt ökutæki er flutt tímabundið úr landi skal ekki greiða kílómetragjald vegna þess aksturs sem sannanlega hefur átt sér stað erlendis enda tilkynni eigandi eða umráðamaður ríkisskattstjóra um akstur erlendis og framvísi innflutnings- og útflutningsskýrslu með staðfestingu tollyfirvalda á kílómetrastöðu ökurita eða ökumælis og hraðamælis við útflutning og innflutning.

Óheimilt er að skipa ökutæki úr landi nema greitt hafi verið álagt kílómetragjald.

Sjá nánar A-deild Stjórnartíðinda.

Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.
Með gildistöku laga nr. 87/2004, þann 1. júlí 2005, um olíugjald, kílómetragjald o.fl. verða eftirtaldar breytingar á ákvæðum laga nr. 29/1993, um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.:

Vörugjald, LB-gjald, af hverjum lítra af bensíni lækkar úr 11,34 kr. í 9,28 kr.

Sérstakt vörugjald af bensíni, s.k. bensíngjald, hækkar á eftirfarandi hátt:
Bensíngjald af blýlausu bensíni, s.k. C1-gjald, skal vera 32,95 kr. af hverjum lítra.
Af öðru bensíni skal greiða s.k. C2-gjald, 34,92 kr. af hverjum lítra. 

Reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins
Þann 21. júní sl. tók gildi reglugerð nr. 509/2004 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins.  Með gildistöku reglugerðarinnar er felld úr gildi reglugerð um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins nr. 416/2002.

Reglugerðin gildir um innflutning á hvers konar afurðum dýra og öðrum vörum, sem smitefni geta borist með er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum.

Helstu breytingarnar er að finna í 3. gr. reglugerðarinnar þar sem taldar eru upp afurðir dýra og vara sem geta borið með sér smitefni er valda sjúkdómum í dýrum og mönnum er óheimilt að flytja til landsins samanber þó nánari útlistun í IV. kafla reglugerðarinnar.
Helsta nýmælið er að finna í c-lið 1. mgr. þar sem segir að óheimilt sé að flytja til landsins afurðir og vörur eins og kjötmjöl, beinamjöl og fóðurvörur unnar úr afurðum eða úrgangi spendýra og fugla nema samkvæmt sérstöku leyfi. 

Þá er í III. kafla reglugerðarinnar fjallað sérstaklega um matvæli og gæludýrafóður.  Vakin skal athygli á því að bætt hefur verið við vörulið 1602 í upptalningu 5. gr. reglugerðarinnar, þar sem nefnd er skylda til vottunar innfluttra matvæla sem ekki hafa hlotið fullnægjandi hitameðferð.  

Umfjöllun um gæludýrafóður er komið fyrir í 6. gr. reglugerðarinnar og er hún að nokkru leyti nýmæli.  Þar er gert ráð fyrir að leyfður sé innflutningur á gæludýrafóðri sem meðhöndlaður hefur verið á eftirfarandi hátt og staðfesting þess efnis kemur fram á viðskiptayfirlýsingu (commercial document) frá EES svæðinu eða vottorði sem ESB viðurkennir þegar um 3ju ríki er að ræða:

  • nagbein úr skinnum eða leðri hafi verið hituð nægilega til að drepa smitandi lífverur (þ.m.t. salmonellu),
  • niðursoðið fóður hafi verið hitað að lágmarki 3.0 í Fc gildi í loftþéttum umbúðum,
  • mjólkurvörur hafi verið gerilsneyddar.
  • annað gæludýrafóður en nefnt er hér að ofan hafi verið hitað upp í kjarnahita a.m.k. 90°C.

Aðfangaeftirlitið fer með eftirlit með ofangreindum staðfestingum og skal innflytjandi leggja þær fram ásamt öðrum skjölum sem krafist er samkvæmt reglugerð nr. 340/2001 um eftirlit með fóðri.

Innflytjandi gæludýrafóðurs skal alltaf þegar að innflutningur á sér stað leggja fram hjá Aðfangeftirlitinu staðfestingu skv. framangreindu.

Um innflutning notaðra landbúnaðartækja gilda ákvæði 8. gr. reglugerðarinnar.  Samkvæmt henni skal innflytjandi notaðra landbúnaðarvéla og áhalda, þar með taldra hestakerra og annarra tækja sem notuð hafa verið í landbúnaði sbr. j. lið 3. gr. alltaf sækja um innflutningsleyfi til landbúnaðarráðherra og skal hann hafa aflað slíks leyfis áður en viðkomandi vörur eru sendar frá útflutningslandi.
Landbúnaðarráðherra getur heimilað innflutning á tækjum sbr. framangreint að fengnum meðmælum yfirdýralæknis enda þyki sannað að ekki berist smitefni með þeim sem valdið geta dýrasjúkdómum.  Með umsókn um leyfi til innflutnings skal leggja fram til umsagnar yfirdýralæknis upplýsingar um uppruna- og framleiðsluland, tegund, framleiðanda, ásamt opinberu dýralæknisvottorðið um að fullnægjandi hreinsun og sótthreinsun hafi farið fram í útflutningslandi.

Í 11. gr. reglugerðarinnar kemur fram að yfirdýralæknir geti gefið út lista yfir soðin eða unnin matvæli sem sannanlega uppfylla skilyrði til innflutnings vegna fullnægjandi hitameðferðar eða sambærilegrar meðferðar, en bera hins vegar ekki með sér merki um slíka meðferð á umbúðum framleiðanda.  Skal þá slíkur listi þá liggja frammi hjá tollayfirvöldum og vera aðgengilegur á heimasíðu embættis yfirdýralæknis.  Slíkur listi liggur ekki fyrir enn sem komið er.

Lög um eiturefni og hættuleg efni
Þann 28. maí sl. voru samþykkt á Alþingi lög um breytingu á lögum um eiturefni og hættuleg efni nr. 52/1988.  Með tilkomu breytinganna er hugtakinu sæfiefnum bætt inn í lögin og nánari útlistun á þeim.  Sæfiefni eru t.d. viðarvörn, nagdýraeitur, skordýraeitur, gróðurhindrandi efni, sótthreinsandi efni og rotvarnarefni.  Eiturefni og hættuleg efni, hrein og blönduð, má því einungis flytja til landsins, selja eða nota sem plöntulyf, illgresiseyði (örgresisefni), stýriefni eða sæfiefni að þau hafi verið skráð sem slík, annaðhvort með samheiti eða með sérheiti framleiðanda.

Sjá nánar A-deild Stjórnartíðinda.

Reglugerðir um úthlutun á tollkvótum

  • Grænmeti

Þann 22. júní sl. tók gildi reglugerð nr. 525/2004 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á grænmeti. Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollnúmer:

   

kg

%

kr./kg

0701.9001

Bökunarkartöflur, 65 mm eða stærri

22.06.-30.09.04

ótilgr.

0

0

0701.9009

Annars (kartöflur)

22.06.-01.08.04

ótilgr.

0

0

0701.9009

Annars (kartöflur)

02.08.-30.09.04

ótilgr.

0

60

0703.9001

Blaðlaukur

01.07.-30.09.04

ótilgr.

0

0

0704.1000

Blómkál

01.07.-04.07.04

ótilgr.

0

0

0704.1000

Blómkál

05.07.-11.07.04

ótilgr.

0

88

0704.1000

Blómkál

12.07.-18.07.04

ótilgr.

0

132

0704.1000

Blómkál

19.07.-30.09.04

ótilgr.

0

176

0704.9001

Hvítkál

01.07.-18.07.04

ótilgr.

0

0

0704.9001

Hvítkál

19.07.-25.07.04

ótilgr.

0

40

0704.9001

Hvítkál

26.07.-30.09.04

ótilgr.

0

79

0704.9002

Rauðkál

01.07.-30.09.04

ótilgr.

0

0

0704.9003

Kínakál

28.06.-30.09.04

ótilgr.

0

206

0704.9004

Spergilkál

01.07.-11.07.04

ótilgr.

0

0

0704.9004

Spergilkál

12.07.-18.07.04

ótilgr.

0

141

0704.9004

Spergilkál

19.07.-25.07.04

ótilgr.

0

197

0704.9004

Spergilkál

26.07.-30.09.04

ótilgr.

0

282

0706.1000

Gulrætur og næpur

01.07.-25.07.04

ótilgr.

0

0

0706.1000

Gulrætur og næpur

26.07.-01.08.04

ótilgr.

0

68

0706.1000

Gulrætur og næpur

02.08.-30.09.04

ótilgr.

0

136

0706.9001

Gulrófur

01.07.-30.09.04

ótilgr.

0

0

0706.9002

Rauðrófur

01.07.-30.09.04

ótilgr.

0

0

0709.4000

Selja, önnur en seljurót

01.07.-25.07.04

ótilgr.

0

0

0709.4000

Selja, önnur en seljurót

26.07.-01.08.04

ótilgr.

0

83

0709.4000

Selja, önnur en seljurót

02.08.-08.08.04

ótilgr.

0

138

0709.4000

Selja, önnur en seljurót

09.08.-30.09.04

ótilgr.

0

193

0709.5100

Sveppir

01.07.-30.09.04

ótilgr.

0

80

  • Nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöt

Þann 27. maí sl. tók gildi reglugerð nr. 459/2004 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 403/2004 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, alifugla- og hreindýrakjöti.

Eftirfarandi tollnúmer falla út í upptalningu í 2. gr. reglugerðarinnar:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

     

kg

%

kr./kg

 

Annað kjöt, fryst - vöruliður 0208:

       

Tollnúmer:

Hreindýrakjöt

 

9.000

   

0208.9007

Beinlaust hreindýrakjöt, fryst

01.07.04 - 30.06.05

 

0

515

0208.9008

Hreindýrakjöt með beini, fryst

01.07.04 - 30.06.05

 

0

515

Eftirfarandi tollnúmer bætast við upptalningu í 2. gr. reglugerðarinnar:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

     

kg

%

kr./kg

Tollnúmer:

Hreindýrakjöt fryst – vöruliður 0208

       

0208.9007

Beinlaust hreindýrakjöt, fryst

01.07.04 – 30.06.05

ótilgreint

0

515

0208.9008

Hreindýrakjöt með beini, fryst

01.07.04 – 30.06.05

ótilgreint

0

515

Úr tollnúmeri:

         

0208.9008

Hreindýrakjöt í heilum og hálfum skrokkum

til 31.12.04

ótilgreint

0

0

  • Smjör og ostar

Þann 12. maí sl. tók gildir reglugerð nr. 402/2004 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á smöri og ostum.

Ákvæði eftirfarandi töflu a og b gilda um vörumagn, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollnúmer:

   

kg

%

kr./kg

a)

         

0405.xxxx

Smjör og önnur fita

01.07.04 - 30.06.05

53.000

0

220

           

b)

Ostur og ystingur:

 

119.000

   

0406.1000

Nýr ostur, mysuostur o.fl.

01.07.04 - 30.06.05

 

0

156

0406.2000

Hvers konar rifinn eða mulinn ostur

01.07.04 - 30.06.05

 

0

156

0406.3000

Fullunninn ostur, órifinn eða ómulinn

01.07.04 - 30.06.05

 

0

117

0406.4000

Gráðostur

01.07.04 - 30.06.05

 

0

179

0406.9000

Annar ostur

01.07.04 - 30.06.05

 

0

175

  • Unnar kjötvörur

Þann 12. maí sl. tók gildir reglugerð nr. 401/2004 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á unnum kjötvörum.

Ákvæði eftirfarandi töflu gilda um tollkvóta, tímabil innflutnings, verð- og magntoll:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

     

kg

%

kr./kg

Tollnúmer:

Kjötvörur úr vörulið 1602:

 

86.000

   

1602.1001

Blönduð matv. meira en 60% af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

92

1602.1009

Meira en 20% til og með 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

92

1602.2011

Meira en 60% af dýralifur

01.07.04 - 30.06.05

-

0

129

1602.2012

Meira en 20% til og með 60% af dýralifur

01.07.04 - 30.06.05

-

0

129

1602.2019

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

44

1602.2021

Annað, meira en 60% af dýralifur

01.07.04 - 30.06.05

-

0

129

1602.2022

Annað, meira en 20%, til og með 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

78

1602.2029

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

26

1602.3101

Úr kalkúnum meira en 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3102

Úr kalkúnum meira en 20% til og með 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3109

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

115

1602.3201

Úr hænsnum meira en 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3202

Úr hænsnum meira en 20%, til og með 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3209

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

115

1602.3901

Annað meira en 60% úr alifuglum

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3902

Annað 20% til og með 60% úr alifuglum

01.07.04 - 30.06.05

-

0

224

1602.3909

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

115

1602.4101

Úr svínum meira en 60%, læri og lærissneiðar

01.07.04 - 30.06.05

-

0

576

1602.4102

Meira en 20% til og með 60%, af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

343

1602.4109

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

115

1602.4201

Meira en 60% af kjöti, bógur og bógsneiðar

01.07.04 - 30.06.05

-

0

412

1602.4202

Meira en 20% til og með 60%, af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

247

1602.4209

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

83

1602.4901

Annað meira en 60% af kjöti, blöndur

01.07.04 - 30.06.05

-

0

511

1602.4902

Annað meira en 20% til og með 60%, af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

307

1602.4909

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

102

1602.5001

Meira en 60% kjöt úr nautgripum

01.07.04 - 30.06.05

-

0

400

1602.5002

Meira en 20% til og með 60%, úr kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

304

1602.5009

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

102

1602.9011

Úr dilkakjöti meira en 60% af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

442

1602.9012

Meira en 20% til og með 60%, af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

265

1602.9019

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

89

1602.9021

Annað, úr öðru kjöti meira en 60%

01.07.04 - 30.06.05

-

0

442

1602.9022

Annað, meira en 20% til og með 60%, af kjöti

01.07.04 - 30.06.05

-

0

265

1602.9029

Annað

01.07.04 - 30.06.05

-

0

89

  • Blóm, tré o.fl.

Þann 12. maí sl. tók gildi reglugerð nr.  400/2004 um (1.) breytingu á reglugerð nr. 893/2003 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.

Við upptalningu í 2. gr. reglugerðarinnar bætist eftirfarandi:

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Tollnúmer:

   

stk.

%

kr./kg

0602.9095

Aðrar pottaplöntur til og með 1 metri á hæð

01.07.04 – 31.12.04

2.500

30

0

0603.1009

Annars (afskorin blóm)

01.07.04 – 31.12.04

125.000

30

0

Sjá nánar B-deild Stjórnartíðinda.

Flutningsjöfnunargjald á sementi
Þann 14. júní sl. var samþykkt á Alþingi að fella úr gildi lög nr. 62/1973 um jöfnun flutningskostnaðar á sementi, með lögum nr.63/2004.  Frá og með gildistöku laganna er jöfnun flutningskostnaðar á sement afnumin og flutningsjöfnunarsjóður sements lagður niður.  Með gildistöku laganna hefur flutningsjöfnunargjald á sement, JA-gjald í Tollakerfi, verið fellt úr gildi.

Flutningsjöfnunargjald á olíuvörum
Þann 1. júlí n.k. breytast flutningsjöfnunargjöld, (J2, J3 og J5-gjald) á olíuvörum, á eftirfarandi hátt:

Flugvélasteinolía (þotueldstneyti) J2-gjald  hækkar úr 0,10 kr./lítra í 0,14 kr/lítra
Gasolía  J3- gjald  hækkar úr 0,73 kr/lítra í 0,77 kr/lítra
Aðrar olíur og blöndur til brennslu  J5-gjald  lækkar úr 0,20 kr./kg í 0,15 kr./kg

Bifreiðabensíngjald (J1-gjald) og flugvélabensíngjald (J4-gjald) haldast óbreytt.

Lög um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur
Þann 1. júlí n.k. taka gildi lög nr. 82/2004 um breytingu á lögum nr. 52/1989, um ráðstafanir gegn umhverfismengun af völdum einnota umbúða fyrir drykkjarvörur, með síðari breytingum.  Með gildistöku laganna hækkar skilagjald, GG-gjald í tollakerfi fyrir einnota umbúðir úr ólituðu plasti úr 7,59 kr./stk. Í 7,99 kr./stk.

Skráningarskírteini innfluttra notaðra ökutækja
Vakin er athygli innflytjenda á því að skila ber frumriti skráningarskírteina innfluttra notaðra ökutækja til Umferðastofu.  Afriti skal skilað til tollstjóra í því umdæmi þar sem tollafgreiðsla fer fram.

29. júní 2004

Tollstjórinn í Reykjavík

Til baka