Vefspjall tollstjóra fyrir innheimtumál opnað

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Vefspjall tollstjóra fyrir innheimtumál opnað

23.06.2005

Þjónustuver innheimtusviðs hefur tekið í notkun samskiptakerfið Svarbox®. Kerfið bíður uppá beint samband við þjónustufulltrúa tollstjóra.

 

Allir gestir vefsins geta notað vefspjallið og þar er hægt að fá svör við spurningum sem tengjast innheimtu opinberra gjalda hjá tollstjóranum í Reykjavík.

Vefspjallið opnar að auki möguleika á beinum samskiptum milli þjónustufulltrúa tollstjóra og heyrnarlausra og annarra viðskiptavina sem geta ekki eða eiga erfitt með að tala í síma.

Vinna við innleiðingu sambærilegs kerfis fyrir tollheimtusvið er vel á veg komin.

 

Til baka