Breytt innheimta fasteignagjalda í Reykjavík
03.01.2007
Frá og með 1. janúar 2007 færist innheimta fasteignagjalda í Reykjavík frá tollstjóraembættinu til Reykjavíkurborgar. Því verða engin fasteignagjöld í innheimtu hjá embættinu frá þeim tíma.
Innheimta á eftirstöðvum eldri álagningaára (2006 og eldra) flyst til Gjaldheimtunnar ehf.
Fyrirspurnum um álagningar og annað viðkomandi fasteignagjöldum skal beint til Reykjavíkurborgar og Gjaldheimtunnar frá og með 1. janúar.
Reykjavíkurborg
Sími: 411 3636
Heimasíða: www.rvk.is
Netfang: fasteignagjold@reykjavik.is
Gjaldheimtan ehf., Suðurlandsbraut 18
Sími: 570 5500
Heimasíða: www.gjaldheimtan.is
Netfang: gjaldheimtan@gjaldheimtan.is
Banki: 0111-26-001224, kt. 711003-2230
Innheimtusvið
Til baka