Heilmikið af sterum haldlagt

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Heilmikið af sterum haldlagt

16.12.2008

Í frétt á lögregluvefnum kemur fram að lögreglan hafi fengið sautján steramál til meðferðar fyrstu tíu mánuði ársins. Flest ef ekki öll málin berast lögreglu frá tollyfirvöldum sem fundu þessi efni í bréfum og bögglum á leiðinni til landsins. Fyrstu tíu mánuði ársins fundust um 10000 steratöflur og 1,2 lítrar af fljótandi sterum. Innflytjendur efnanna leggja mikið á sig til að dylja innihald sendinganna og koma sterunum fyrir í umbúðum af ólíklegasta tagi. Ólöglegur innflutningur á sterum varðar við lyfjalög.

Svo virðist að stutt sé á milli misnotkunar á sterum og misnotkun annara lyfja og fíkniefna.

Í grein á vef SÁÁ kemur meðal annars fram:

Árið 1997 misnotuðu 4,8 % sjúklinganna anabóla stera, 55 karlar og tvær konur. Meðalaldur þessa fólks er um 25 ár. Þarna er töluverð aukning á ferðinni. 78 % þessara sjúklinga misnotuðu ólögleg vímuefni og var amfetamín neysla mest áberandi.

Lesa greinina á vef SÁÁ

Um virkni og aukaverkanir stera á Vísindavefnum

Fréttin á lögregluvefnum

Til baka