Námskeið í tollskýrslugerð vegna innflutnings

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Námskeið í tollskýrslugerð vegna innflutnings

04.09.2009

Námskeið í tollskýrslugerð fyrir almenning verður haldið á vegum Tollskóla ríkisins 5. - 9. október. Kennsla fer fram að Skúlagötu 17, 2. hæð kl. 8.10 - 12.00.

Þátttakendur fá þjálfun í gerð tollskýrslu og öðlast grunnskilning á helstu reglum er varða innflutning. Farið verður yfir helstu fylgiskjöl og útreikninga, uppbyggingu tollakerfis, upprunavottorð, reglur o.fl.

Skráning og upplýsingar gefur Gunnlaug Hartmannsdóttir starfsþróunarstjóri í síma 5600-551, netfang: gunnlaug.hartmannsdottir@tollur.is

Til baka