Smygl í flutningaskipi

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Smygl í flutningaskipi

07.12.2010

Í síðustu viku lagði tollgæslan hald á talsvert magn af smyglvarningi, sem fannst við leit í flutningaskipi.

Öflugur hópur tollvarða ásamt fíkniefnaleitarhundum tók þátt í verkefninu. Alls fundust rúmlega rúmlega 110 lítrar af sterku áfengi 9 lítrar af léttu áfengi og rúmlega 132 lítrar af bjór í skipinu, en einnig var lagt hald á talsvert magn af vindlingum og snusi auk kjöts og fatnaðar.

Hér eru nokkrar myndir frá leitinni


Tollgæslan gerir árlega upptækt mikið magn af ólöglega innfluttum varningi sem reynt er að smygla til landsins. Mörg þessara mála upplýsast eingöngu vegna aðstoðar almennings.

Hægt er að senda tollayfirvöldum upplýsingar um um smygl og ólöglegan inn- eða útflutning.

Við minnum einnig á upplýsingasímann 800 5005, sem er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

Hafir þú upplýsingar varðandi fíkniefnamál, sem þú vilt koma á framfæri, getur þú hringt nafnlaust í síma 800 5005. Símsvari tekur við skilaboðum frá þér og þú getur valið um hvort þú vilt gefa upp nafn þitt eða ekki.

Tengiliður vegna fréttar Guðni Sigmundsson aðstoðaryfirtollvörður S-8929445

Til baka