Álagning 2013 - lækkun launaafdráttar í hnotskurn

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Álagning 2013 - lækkun launaafdráttar í hnotskurn

24.07.2013

Hægt er að ganga frá flestum greiðsluáætlunum um lækkun launaafdráttar með því að senda þjónustufulltrúum lögfræðideildar tölvupóst á netfangið vanskil@tollur.is. Einnig er hægt að gera greiðsluáætlun með því að koma til þjónustufulltrúa lögfræðideildar á 5. hæð Tollhússins. Yfirleitt eru margir sem leita til þjónustufulltrúa í kjölfar álagningar opinberra gjalda og því getur biðtími lengst. Það getur því sparað tíma og fyrirhöfn að ganga frá greiðsluáætlun með tölvupósti.

Áætlaðir skattar

  • Hafi skattar verið áætlaðir er hægt að láta útbúa greiðsluáætlun um lækkun launaafdráttar með því að koma með eða senda bráðabirgðaútreikning og er þá útbúin greiðsluáætlun í samræmi við hann.
  • Bráðabirgðaútreikning færðu á þjónustusíðu Ríkisskattstjóra http://www.skattur.is/ eða hjá Ríkisskattstjóra.
  • Greiðsluáætlunina afhendir þú vinnuveitanda þínum sem á að draga af launum þínum í samræmi við hana. Ef þú óskar þess getum við sent greiðsluáætlunina með tölvupósti beint til vinnuveitanda þíns. Launakerfi ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar fá sjálfkrafa upplýsingar um greiðsluáætlunina.

Álagðir skattar samkvæmt framtali

  • Ef þú vilt greiða álagða skatta samkvæmt framtali á lengri tíma en þeim fimm gjalddögum sem gert er ráð fyrir í lögum um tekjuskatt, er hægt að láta gera greiðsluáætlun sem dreifir greiðslum skattanna yfir lengra tímabil.
  • Greiðsluáætlunina afhendir þú vinnuveitanda þínum sem á að draga af launum þínum í samræmi við hana. Ef þú óskar þess getum við sent greiðsluáætlunina með tölvupósti beint til vinnuveitanda þíns. Launakerfi ríkissjóðs og Reykjavíkurborgar fá sjálfkrafa upplýsingar um greiðsluáætlunina.

Hafa þarf hugfast að gerð greiðsluáætlunar kemur ekki í veg fyrir að inneignum verði skuldajafnað upp í þær kröfur sem gjaldfallnar eru.

Nánari upplýsingar um álagningu og launaafdrátt 2013

Til baka