Rafmagnstæki þurfa að vera CE-merkt - Tugir sendinga stöðvaðar

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Rafmagnstæki þurfa að vera CE-merkt - Tugir sendinga stöðvaðar

01.10.2014

Tollstjóri vill af gefnu tilefni minna á að rafmagnstæki sem keypt eru erlendis eða pöntuð á netinu þurfa að bera CE merkingu til að flytja megi þau til landsins samkvæmt gildandi tilskipunum á Evrópska efnahagssvæðinu. (EES) Lausleg samantekt sýnir að stöðva þurfti innflutning á milli 70 og 80 sendinga frá Kína á tveggja mánaða tímabili í sumar vegna þess að CE merkingar vantaði. Einkum var um að ræða síma og spjaldtölvur.

Á Íslandi gilda sömu reglur um CE-merkingar og í öðrum EES-ríkjum þar sem landið er aðili að EES-samningnum.

Vöruflokkar sem heyra undir umræddar tilskipanir EES, auk rafmagnstækja, eru til dæmis leikföng, vélar, persónuhlífar og notendabúnaður fjarskiptakerfa og síma

CE-merking er skilyrði fyrir markaðssetningu tiltekinna vara á Evrópska efnahagssvæðinu. Merkið er auðkennismerking sem gefur til kynna að framleiðandi, innflytjandi eða dreifingaraðili vöru ábyrgist að hún uppfylli þær grunnkröfur um öryggi og almennt heilbrigði sem tilskipanir Evrópusambandsins kveða á um.

CE-merking á rafmagnstæki

Nánari upplýsingar um CE-merkingar er að finna á þessum vefslóðum:

Til baka