Nær 200 sendingar af melatonin – svefnlyfi stöðvaðar

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Nær 200 sendingar af melatonin – svefnlyfi stöðvaðar

19.09.2017

Tollverðir hafa stöðvað 199 sendingar, sem innihéldu svefnlyfið  melatonin, í tollpósti það sem af er þessu ári. Þar af bárust 88 sendingar á tímabilinu júní - ágúst sl. Langflestar sendinganna sem innihalda melantonin  hafa borist frá netverslunum í Bandaríkjunum.

Vakin er athygli á því að melantonin er skilgreint sem lyf hér á landi og því fellur það, svo og fæðubótarefni sem innihalda það, undir lyfjalög. Samkvæmt því er innflutningur bannaður.

Sjá: https://www.lyfjastofnun.is/utgefid-efni/frettir/nr/4930

Tollstjóri minnir jafnframt á alþjóðlega aðgerð sem gerð var um mitt ár 2016 á vegum INTERPOL með þátttöku íslensku tollgæslunnar. Lyfjastofnunar og aðkomu Europol, Matvælastofnunar o.fl. Í aðgerðinni var lagt hald á  12. 2 milljónir eininga af ólöglegum og mögulega lífshættulegum lyfjum og 4.932 vefsíðum sem buðu upp á slíkan varning lokað. Markmið aðgerðarinnar var að vernda heilsu og öryggi almennings gegn ólöglegri framleiðslu og jafnframt að stöðva slíka framleiðslu. Alþjóðlegar aðgerðir af þessu tagi hafa staðfest að glæpamenn svífast einskis þegar kemur að vörusvikum við framleiðslu og engin tegund varnings er undanskilin, þar með talin lyf og fæðubótarefni að því er fram hefur komið hjá INTERPOL og Europol.

Þá hefur Matvælastofnun varað við kaupum á fæðubótarefnum á internetinu. 

 

Ljósmyndir: Brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum og eru á leið til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum og eru á leið til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Brot af þeim sendingum sem stöðvaðar hafa verið í tollinum og eru á leið til eyðingar í Sorpeyðingarstöð Suðurnesja.

Til baka