Hald lagt á talsvert magn tóbaks ásamt öðrum varningi við komu farþegaferjunnar Norrænu þann 18.07.2019

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Norræna

Hald lagt á talsvert magn tóbaks ásamt öðrum varningi við komu farþegaferjunnar Norrænu þann 18.07.2019

19.07.2019

Þann 18.07 2019 lögðu tollverðir við komu farþegaferjunnar Norrænu hald á talsvert magn tóbaks ásamt öðrum varningi. Tóbakinu, sem var í formi sígarettupakkninga, hafði verið komið fyrir inni í nokkrum hurðarflekum, pökkuðum í söluumbúðir. Haganlega hafði verið gengið frá þessu þannig að ekki var að sjá ummerki um að átt hafi verið við hurðaflekana né umbúðir þeirra. 

Málsaðilar greiddu sekt upp á rúmar 1,4 milljónir og telst málið upplýst.

Undanfarið hafa tollverðir við komu Norrænu lagt hald á ólöglega innflutta stera í þremur málum. Um er að ræða tæplega 20.000 töflur og tæpa þrjá lítra í fljótandi formi. Þessi mál eru enn til rannsóknar hjá yfirvöldum.

Til baka

Myndir með frétt

Mynd með frétt
Mynd með frétt
Mynd með frétt