Sameining tollstjóra og ríkisskattstjóra

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Sameining tollstjóra og ríkisskattstjóra

23.12.2019

Þann 1. janúar næstkomandi sameinast embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra undir nafninu Skatturinn.

Þann 11. desember 2019 var samþykkt á Alþingi að sameina embætti tollstjóra og ríkisskattstjóra með það að markmiði að bæta þjónustu og hafa að leiðarljósi sjálfvirknivæðingu og stafræna opinbera þjónustu í starfsemi skatt- og tollyfirvalda.

Afgreiðslur embættisins verða fyrst um sinn óbreyttar á Tryggvagötu 19 og Laugavegi 166.

Opnunartími afgreiðslu verður óbreyttur eða mánudaga – fimmtudaga frá kl. 09:00 - 15:30 og föstudaga frá kl. 09:00 – 14:00.

Símanúmer verða óbreytt,  442 1000 vegna skatta og innheimtu og 560 0300 vegna tollamála.

Netföng breytast ekki.

Kennitala sameinaðs embættis verður 540269-6029 (kennitala ríkisskattstjóra).

Engar breytingar verða á bankareikningum vegna innheimtu.

Verið er að vinna að frekari samræmingu á starfsemi stofnananna.

Til baka