Leiðbeiningar með eyðublaðinu TS-V04 Umsókn og yfirlýsing vegna eftirgjafar vörugjalds af ökutæki

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Leiðbeiningar með eyðublaðinu TS-V04 Umsókn og yfirlýsing vegna eftirgjafar vörugjalds af ökutæki

Þetta eyðublað inniheldur virkni sem krefst notkunar Adobe Reader, forritið er frítt og mælt er með nýjustu útgáfu. Eyðublaðið virkar ekki rétt með öðrum pdf lesurum.

Skoðaðu þessa lausn ef þú lendir í vandræðum með að opna eyðublaðið.

Heiti reits

Leiðbeiningar

Notkunarskilmálar

Um er að ræða flettiglugga þar sem farið er fram á eftirgjöf vörugjalds skv. tilteknu ákvæði reglugerðar nr. 331/2000 um vörugjald af ökutækjum eða laga um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. nr. 29/1993.

  1. Leigubílar, sbr. 15. gr. r. 331/2000, kvöð gildir í tvö ár
  2. Ökukennsla, sbr. 15. gr. a og 15. gr. b r. 331/2000, kvöð gildir í tvö ár
  3. Ökukennsla og leigubílaakstur, sbr. 15. gr. c r. 331/2000, kvöð gildir í tvö ár
  4. Sérsmíðaðar bifreiðar til akursíþrótta, sbr. 16. gr. r. 331/2000, kvöð gildir í sjö ár
  5. Bifreiðar fyrir starfsemi björgunarsveita, sbr. 17. gr. r. 331/2000, kvöð gildir í 5 ár
  6. Önnur ökutæki fyrir starfsemi björgunarsveita, sbr. 17. gr. r. 331/2000, kvöð gildir í 3 ár
  7. Sérútbúnar bifreiðar fyrir fólk með fötlun, sbr. 19. gr. r. 331/2000, kvöð gildir í 4 ár
  8. Sérútbúin ökutæki fyrir fólksflutninga, sbr. 5. gr. l. 29/1993, kvöð gildir í 5 ár

 

Tegund

Skráð tegund ökutækis.

Árgerð

Framleiðsluár ökutækis.

Fastnúmer

Skráð fastnúmer ökutækis t.d. AB-C12.

Sendingarnúmer

Sendingarnúmer aðflutningsskýrslu fyrir viðkomandi ökutæki.

Notkun

Hér er skráð notkun ökutækis t.d. leigubílar eða ökukennsla. Þessi reitur er notaður til að fyrirbyggja mistök í umsóknarferli.

Verksmiðjunúmer

Einkvæmt númer ökutækis í framleiðslu.

Netfang fyrir samskipti

Valkvæður reitur fyrir samskipti.

Innflytjandi

Upplýsingar um innflytjanda ökutækis, nafn, kennitala, lögheimili.

Umsækjandi

Upplýsingar um umsækjanda, nafn kennitala og lögheimili.

Fylgiskjöl og önnur staðfestingargögn

Atvinnuleyfi til leigubílaaksturs eða önnur nauðsynleg gögn.

Undanþáguflokkur

Um er að ræða flettiglugga. Hér er valið flokk ökutækis samkvæmt skráðri koltvísýrings. Taflan vísar til upplýsinga úr 3. gr. laga nr. 29/1993 um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl. Vakin er athygli á hámarkseftirgjöf vörugjalds.

Staður og dags

Fyllist út af umsækjanda.

F.h. umsækjanda

Undirritun umsækjanda eða starfsmanns félagsins sem hefur umboð til að sækja um eftirgjöf vörugjalds.

Undirskrift eftirgjafarþega / staðfesting eignarleigu

Undirritun eftirgjafaþega eða staðfesting eignarleigu. Nauðsynlegt er að viðkomandi starfsmaður hafi umboð. 

Vottar að réttri dagsetningu, undirritun og fjárræði.

Reitur þarfnast ekki skýringa.

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir