Umsókn
Umsókn - ferill
Hér eru upplýsingar um feril umsóknar.
Dagsetning / tími
Í þessum dálki sést hvenær umsókn lenti í tiltekinni stöðu.
Skýring
Umsókn um aðgang að Tollalínunni eru sett í mismunandi stöður meðan á vinnslu hennar stendur. Í þessum dálki eru upplýsingar um mismunandi stöður, sem umsóknin hefur lent í.
Umsókn - mismunandi stöður
Umsókn um aðgang að Tollalínunni eru sett í mismunandi stöður frá því að sótt er um og þangað til afgreiðslu umsóknar lýkur.
Þetta eru stöðurnar sem umsókn lendir í:
- Tölvupóstfang óstaðfest
Þetta er fyrsta staðan, sem umsókn lendir í. Þegar umsókn er uppfærð á vef, lendir hún í stöðunni tölvupóstfang óstaðfest.
- Tölvupóstfang staðfest
Um leið og búið er að uppfæra umsókn á vef, er umsækjanda sendur tölvupóstur og hann beðinn um að smella á slóð í tölvupóstinum og staðfesta þannig tölvupóstfang sitt. Um leið og búið er að smella á slóðina, breytist staða umsóknarinnar í tölvupóstfang staðfest.
- Ósamþykkt
Um leið og búið er að staðfesta tölvupóstfang, birtist prentvæn útgáfa af umsókninni á skjánum. Um leið og smellt er á hnappinn til að prenta út umsókn, breytist staða umsóknarinnar í ósamþykkt.
- Samþykkt
Útprentuð umsókn er send til Tollstjórans í Reykjavík. Ef allar upplýsingar á umsókn eru réttar, er umsóknin samþykkt og breytist þá staða hennar í samþykkt.
- Hafnað
Útprentuð umsókn er send til Tollstjórans í Reykjavík. Ef umsækjandi þarf að leiðrétta upplýsingar á umsókn, er sendur tölvupóstur með upplýsingum um þau atriði, sem leiðrétta þarf. Staða umsóknarinnar breytist við það í hafnað.
- Lokun - tímabundin
Ef loka þarf aðgangi fyrirtækis að Tollalínunni tímabundið, breytist staða umsóknarinnar í lokun - tímabundin.
- Lokun - endanleg
Ef loka þarf aðgangi fyrirtækis að Tollalínunni varanlega, breytist staða umsóknarinnar í lokun - endanleg. Þetta gerist t.d. þegar fyrirtæki segir upp aðgangi sínum að Tollalínunni.