Gildistími og skráning

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Gildistími og skráning

Við tollafgreiðslu sendinga á degi hverjum skal ákvörðun tollverðs í tollskýrslum byggð á tollafgreiðslugengi eins og opinbert viðmiðunargengi er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta mánudag á undan.

Þetta merkir að gengið sem Seðlabanki skráir á hverjum mánudegi gildir frá og með þriðjudeginum eftir og til og með næsta mánudegi. 

Dæmi: Gengi Seðlabanka á mánudegi gildir frá og með þriðjudegi og til miðnættis næsta mánudag.  Frídagar virka á eftirfarandi hátt: Þegar helgidag eða almennan frídag ber upp á mánudag skal miða tollafgreiðslugengi við opinbert viðmiðunargengi næsta virka dags á undan.

Sérregla um útflutning

Sömu reglur gilda og um innflutning nema ekki skal nota nýrra gengi en í gildi er á brottfarardegi flutningsfars ef tollskýrsla er gerð og tollafgreidd eftir brottfarardag; þetta er sama regla og var í gildi fyrir 1. febrúar 2008.

Hraðsendingar og bráðabirgðatollafgreiðsla

Um hraðsendingar (HS sendingar) og bráðabirgðatollafgreiðslu inn- og útflutnings gilda að öðru leyti sömu reglur og giltu fyrir 1. febrúar 2008.

(Uppfært 1. júlí 2020 - sjá frétt Skattsins)

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir