Hvað má verðmæti nýrra hluta í búslóð vera mikið?
Fjölskyldumeðlimum 18 ára og eldri er heimilt að hafa tollfrjálst muni sem þeir hafa átt í skemmri tíma en eitt ár að heildarverðmæti 140.000 kr. miðað við smásöluverð á innkaupsstað; helmingi lægri fjárhæð gildir fyrir þá sem yngri eru.
Þetta gildir einungis ef uppfyllt eru skilyrði um að viðkomandi hafi búið erlendis í eitt ár í það minnsta.
Síðast yfirfarið/breytt mars 2014