Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl.

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim
Síður úr tollskrá

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl.

27.12.2018

Breytingar á aðflutningsgjöldum o.fl. vegna tollafgreiðslu vara sem taka gildi 1. janúar 2019.
Varðar m.a. innflytjendur, útflytjendur, tollmiðlara og hugbúnaðarhús, sem selja eða þjónusta hugbúnað til tollskýrslugerðar.
Almennt gildir að breytingarnar taka til allra vara sem ótollafgreiddar eru 1. janúar 2019 nema annað sé tekið fram.

1.
Kolefnisgjöld á eldsneyti, K* gjöld

Nefnd kolefnisgjöld verða þessi:
K2    Kolefnisgjald. Gas- og díselolía:  10,40 kr./lítra
K3    Kolefnisgjald. Bensín:  9,10 kr./lítra
K5    Kolefnisgjald. Brennsluolía:  12,80 kr./kg.
K6    Kolefnisgjald. Jarðolíugas og annað loftkennt kolvatnsefni:  11,40 kr./kg.
Heimild: 2. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019. 

2.
Vörugjald af bensíni, LB gjald

Gjaldið verður:
LB    Vörugjald af bensíni: 28,05 kr./lítra
Heimild: 6. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019. 

3.
Sérstakt vörugjald af eldsneyti, C1 og C2 gjöld

Gjöldin verða:
C1    Blýlaust bensín: 45,20 kr./lítra
C2    Annað en blýlaust bensín: 47,90 kr./lítra
Heimild: 7. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019. 

4.
Olíugjald, C3 gjald

C3    Olíugjald á gas- og dísilolíu og ennfremur á steinolíu til ökutækja: 62,85 kr./lítra
Heimild: 8. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019. 

5.
Áfengisgjöld, VX, VY og VZ

Áfengisgjöld verða:
VX    Áfengisgjald – Öl o.fl.: 122,60 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25% 
VY    Áfengisgjald – Vín: 111,65 kr./cl. af vínanda umfr. 2,25%
VZ    Áfengisgjald – Annað áfengi: 151,10 kr./cl. af vínanda umfr. 0%  
Heimild: 3. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019.

6.
Tóbaksgjöld, innflutningur til einkanota, T1 og T2

Tóbaksgjöld verða:
T1    Tóbaksgjald – vindlingar:  632,25 kr.á hvern pakka; 20 vindlingar
T2    Tóbaksgjald – annað tóbak:  35,10 kr./gramm
Heimild: 5. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019. 

7.
Flutningsjöfnunargjöld á olíuvörum (eldsneyti), J* gjöld

Gjöldin verða þessi:
J1    Bifreiðabensín: 0,50 kr. á lítra
J2    Flugsteinolía (þotueldsneyti): 0,10 kr. á lítra
J3    Gasolía: 0,77 kr. á lítra
J4    Flugvélabensín: 0,10 kr. á lítra
J5    Aðrar olíur og blöndur til brennslu: 0,20 kr. á kg. 
Heimild: Auglýsing nr. 1189/2018 um flutningsjöfnunargjald á olíuvörum

8.
Úrvinnslugjöld, B* gjöld

Þessar breytingar eru skv. 27. og 28. gr. laga nr. 138/2018 um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2019 og breyta lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka IV við lögin:
BL    Í stað 0,20 kr./kg. í tollskrárnúmerinu 2710.1920 kemur: 35,00 kr./kg.
BL    Við bætist tollskrárnúmerið 2710.1940: 0,20 kr./kg.

Eftirfarandi breytingar verða á viðauka XVI við lögin:
BS    Við bætist tollskrárnúmerið 8701.2021: 18.000 kr./stk.
BS    Við bætist tollskrárnúmerið 8701.2029: 18.000 kr./stk.

9.
Ný gjöld, N1, N2 og N3, vörugjald af ökutækjum

Í stað þess að leggja vörugjald á ökutæki í tíu gjaldbilum munu ökutæki bera vörugjald miðað við hvert gramm/km. skráðrar koltvísýringslosunar eftir því hvaða aðferð er beitt við skráningu koltvísýringslosunar viðkomandi ökutækis.
Þessi breyting er skv. lögum nr. 117/2018 um breytingu á lögum um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl., lögum um bifreiðagjald og lögum um virðisaukaskatt (losunarviðmið, sendi-, vöru- og golfbifreiðar). 

Gjaldflokkar skv. 3. gr. laganna um vörugjald af ökutækjum o.fl. verða þessir:

N1 0,37% á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar (CO2) umfram 74 grömm á hvern ekinn kílómetra skráðrar koltvísýringslosunar hafi losunin einvörðungu verið skráð samkvæmt evrópsku aksturslotunni (NEDC)
N2     0,31% á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar (CO2) umfram 90 grömm á hvern ekinn kílómetra skráðrar koltvísýringslosunar hafi losunin einvörðungu verið skráð samkvæmt samræmdu prófunaraðferðinni (WLTP)
N3     0,34% á hvert gramm skráðrar koltvísýringslosunar (CO2) umfram 81 gramm á hvern ekinn kílómetra skráðrar koltvísýringslosunar hafi losunin verið skráð samkvæmt evrópsku aksturslotunni (NEDC) og samræmdu prófunaraðferðinni (WLTP)

 
Gjaldið skal samanlagt ekki nema meira en 65% á hvert ökutæki.

M0, M1, M2, M3, M4, M5, M6, M7, M8 og M9 falla úr gildi.

Sjá einnig: Útreikningur vörugjalda af ökutækjum

Á vef Alþingis: Frumvarp til laga ásamt greinargerð

10.
Breyting á tollskrá

Breytingin er skv. auglýsingu nr. 136/2018 um breyting á viðauka I við tollalög nr. 88/2005, m.s.br. (A-deild Stjórnartíðinda). Breytingarnar eru umfangsmiklar en varða inn- og útflytjendur mismikið. 

11.
Reglugerðir um tollkvóta

Reglugerð nr. 1045/2018 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum frá Evrópubandalaginu.
Birt 26. nóvember 2018.
Gildir frá 1. janúar 2019 til 30. júní 2019. 

Reglugerð nr. 1025/2018 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á blómum, trjám o.fl.
Birt 22. nóvember  2018.
Gildir frá 1. janúar 2019 til 31. desember 2019.

Reglugerð nr. 1026/2018 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á ostum frá Noregi.
Birt 22. nóvember 2018.
Gildir frá 1. janúar 2019 til 31. desember 2019. 

Reglugerð nr. 1132/2018 um úthlutun á tollkvótum vegna innflutnings á landbúnaðarvörum samkvæmt viðaukum IVA og IVB við tollalög.
Birt 13. desember 2018.
Gildir frá 15. desember 2018 til 31. desember 2019. 

12.
Lokun á sjálfvirkri EDI/VEF-tollafgreiðslu

Vegna breytinga á gjöldum og tölvuvinnslu verður lokað fyrir sjálfvirka EDI/VEF-tollafgreiðslu hjá Tollstjóra frá kl. 14:00 hinn 31. desember 2018 til kl. 12:00 hinn 2. janúar 2019.

13.
Tollskrárlyklar til nota í tollskýrslugerðarhugbúnaði

Tollskrárlyklar (bæði vegna innflutnings og útflutnings), sem taka gildi 1. janúar 2019, verða aðgengilegir hér á vef Tollstjóra 27. desember 2018.

 
Ábendingar

Útflutningur - Í útflutningsskýrslu skal nota tollskrárnúmer, skilmála þess og tollafgreiðslugengi sem í gildi er tollafgreiðsludag útflutningsskýrslunnar, en þó skal aldrei miða við nýrri dag en brottfarardag vörusendingar frá Íslandi, sem útflutningsskýrslan tekur til. Sama gildir þegar leiðrétta eða breyta þarf útflutningsskýrslum eftir tollafgreiðslu. 

Innflutningur - Þegar leiðrétta eða breyta þarf aðflutningsskýrslum vegna þegar tollafgreiddra innfluttra vörusendinga, t.d. vegna of- eða vangreiddra gjalda, þá bera þær leiðréttingar aðflutningsgjöld skv. tollskrá, lögum og reglugerðum sem í gildi voru tollafgreiðsludaginn eða e.a. bráðabirgðatollafgreiðsludaginn og nota skal tollafgreiðslugengi þess dags. Tollskrárnúmer, skilmálar þeirra, gjöld og tollafgreiðslugengi innfluttra hraðsendinga miðast við þann dag þegar tollgæsla veitti leyfi til að afhenda sendinguna innanlands (langoftast komudagur sendingar til landsins).

Á vef Tollstjóra má skoða annars vegar tegundir tolla og hins vegar önnur aðflutningsgjöld og taxta þeirra fyrir og eftir 1. janúar með því að velja viðeigandi viðmiðunardagsetningu. Ennfremur fást upplýsingar um tollskrárnúmer, tolla og gjöld á þeim o.fl. í tollskránni á vef Tollstjóra.

Nánari upplýsingar
Um tæknilega framkvæmd: Rekstrar- og upplýsingatæknisvið Tollstjóra
ut[hja]tollur.is eða þjónustuvakt, sími: 560 0505 
Um tollamál og tollafgreiðslu: Þjónustuver Tollasviðs Tollstjóra, sími 560 0315

Til baka