Undanþágur frá greiðslu aðflutningsgjalda

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Undanþágur frá greiðslu aðflutningsgjalda

Eftirtaldar vörur eru undanþegnar aðflutningsgjöldum og/eða virðisaukaskatti að uppfylltum skilyrðum:

Til að fá aðflutningsgjöld niðurfelld þarf í flestum tilfellum að senda umsókn um undanþágu

Nánari upplýsingar um skilyrði til undanþágu er að finna hér að neðan.

 

Sumar vörur eru undanþegnar virðisaukaskatti við innflutning þó greiða þurfi af þeim önnur gjöld.

Innflytjandi getur átt rétt á lækkun eða niðurfellingu vörugjalds af ökutækjum í ákveðnum tilvikum að uppfylltum tilteknum skilyrðum við innflutning ökutækis til landsins. 

Hér eru nánari upplýsingar um lækkun eða niðurfellingu á vörugjaldi af ökutækjum.

Umsókn

Senda ber umsókn um undanþágu / endurgreiðslu / niðurfellingu aðflutningsgjalda til Tollstjóra.

Umsókn um niðurfellingu aðflutningsgjalda skal borin fram í aðflutningsskýrslu, eyðublaði E1, með því að rita viðeigandi undanþágutilvísun í reit 14 í skýrslunni.

Umsókn um endurgreiðslu aðflutningsgjaldaskal borin fram á þar til gerðu umsóknareyðublaði um endurgreiðslu aðflutningsgjalda, E20.   

Umsókn um lækkun eða niðurfellingu vörugjalds skal beint til Tollstjóra og annast hann jafnframt framkvæmd lækkunar eða niðurfellingar, þ.m.t. tilkynningar til skráningaraðila.

Með því að setja yfirlýsingu um undanþágu á aðflutningsskýrslu  er innflytjandi að lýsa því yfir að hann sæki um undanþágu aðflutningsgjalda af tiltekinni vöru í vörusendingu samkvæmt þeim heimildum sem undanþágutilvísun nær til.

Jafnframt felur slík umsókn í sér yfirlýsingu um að innflytjandi skuldbindi sig til að hlíta öllum þeim fyrirmælum, skilyrðum og takmörkunum sem er að finna í nefndum heimildum fyrir undanþágu gjaldanna og ráðstöfun vörunnar.

Kæruleiðir

 

Kærustig varðandi undanþágur eru tvö:

  1. Sé umsókn um undanþágu aðflutningsgjalda hafnað hjá Tollstjóra er heimilt að kæra slíka ákvörðun til úrskurðar hjá Tollstjóra samkvæmt 117. grein tollalaga. Einungis innflytjandi getur kært ákvörðun Tollstjóra eða einhver fyrir hans hönd með gilt umboð frá innflytjanda.
  2. Ef Tollstjóri staðfestir fyrri ákvörðun sína um höfnun í úrskurði, er heimilt að kæra úrskurð Tollstjóra til Yfirskattanefndar samkvæmt 118. grein tollalaga.
  • Kæra þarf að vera:

    • Skrifleg
    • Studd nauðsynlegum rökum og gögnum

 

Kærufrestir

  • Kærufrestur er 60 dagar frá því ákvörðun Tollstjóra lá fyrir þegar óskað er úrskurðar Tollstjóra.
  • Kærufrestur er 60 dagar frá póstlagningu úrskurðar þegar óskað er úrskurðar Yfirskattanefndar.

Úrskurður Tollstjóra á að liggja fyrir innan 30 daga frá því er gagnaöflun er lokið og skal hann vera rökstuddur. 

Úrskurður Yfirskattanefndar skal liggja fyrir innan 60 daga frá því að gagnaöflun er lokið.

Úrskurður Yfirskattanefndar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslustigi.

Aftur upp

Bifreiðar, bifhjól og tengivagnar skráð erlendis

Ekki þarf að greiða aðflutningsgjöld af bifreiðum, bifhjólum og tengivögnum sem:

  • Skráð eru erlendis og
  • Fluttir eru til landsins af mönnum sem hafa eða hafa haft fasta búsetu erlendis og
  • Verða flutt úr landi við lok dvalar viðkomandi í landinu en þó eigi síðar en innan eins árs frá komu innflytjanda  til landsins.

Undanþága þessi gildir í eitt ár frá komu ökutækis til landsins.  Innflytjandi ökutækis þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

  • Bifreiðin sé til persónulegra nota innflytjanda og fjölskyldumeðlima hans og annarra sem eru með honum í för og eru búsettir erlendis.
  • Bifreiðin sé flutt til landsins eða keypt ný óskráð hér á landi innan eins mánaðar frá því viðkomandi kom til tímabundinnar dvalar.

Heimilt er að flytja inn eldsneyti í eldsneytisgeymi ökutækis án greiðslu aðflutningsgjalda þegar ofangreind skilyrði eru uppfyllt, þó að hámarki 200 lítra.

Eiganda eða umráðamanni ökutækis er heimilt að flytja inn varahluti í ökutækið tollfrjálst ef ökutæki bilar eða verður fyrir tjóni.

Ofangreint gildir einnig um ökutæki sem skráð er erlendis og er í eigu eða leigu erlends fyrirtækis með staðfestu á Evrópska efnahagssvæðinu og flutt er til landsins af starfsmanni þess fyrirtækis.

Aftur upp

Björgunarbúnaður og björgunartæki

Björgunarbúnaður og björgunartæki, önnur en ökutæki, sem björgunarsveitir eða viðurkennd heildarsamtök þeirra flytja inn eru undanþegin aðflutningsgjöldum enda verði þau eingöngu notuð í starfsemi björgunarsveitar.

Tollstjóri getur áskilið að viðurkennd heildarsamtök björgunarsveita lýsi því yfir að um sé að ræða björgunartæki og -búnað sem verða eingöngu nýtt til starfsemi björgunarsveitar.

Sérútbúin ökutæki til björgunarstarfa, sem björgunarsveitir eða viðurkennd heildarsamtök þeirra flytja inn, eru undanþegin vörugjaldi og virðisaukaskatti enda séu neðangreind skilyrði uppfyllt;

  • Vörugjald fellur eingöngu niður ef fyrir liggur staðfesting samstarfsnefndar um endurgreiðslu aðflutningsgjalda.
  • Niðurfellingin nær einnig til vörugjalds sem stofnast vegna aðvinnslu ökutækis hér á landi.
    Ökutækið skal vera skráð eign björgunarsveitar, í fimm ár frá nýskráningu ef um bifreið er að ræða en í þrjú ár ef um annað ökutæki er að ræða. Á þeim tíma er óheimilt að nýta ökutæki til annars en fyrir venjulega starfsemi björgunarsveitar.

Ef brotið er gegn framangreindum skilyrðum fellur heimild til niðurfellingar eða endurgreiðslu niður. Brjóti aðili, sem nýtur lækkunar eða niðurfellingar vörugjalds gegn skilyrðum um nýtingu ökutækis o.fl. skal hann greiða ógreitt vörugjald, þ.e. mismun á fjárhæð vörugjalds sem greitt var og þeirri fjárhæð sem borið hefði að greiða ef ekki hefði komið til lækkunar eða niðurfellingar.

Lögveð er í viðkomandi ökutæki fyrir ógreiddu vörugjaldi.

Aftur upp

Búslóðir - búferlaflutningar

Heimilismunir manna sem flytjast búferlum hingað til lands eru tollfrjálsir.

Skilyrði þess að sending fái afgreiðslu sem tollfrjáls búslóð eru eftirfarandi:

Viðkomandi hafi haft fasta búsetu erlendis í a.m.k. tólf síðustu mánuði áður en hann fluttist til landsins. Tollfrelsi samkvæmt þessum lið tekur ekki til ökutækja eða annarra vélknúinna farartækja.

  • Um sé að ræða notaða heimilismuni sem hafi verið í eigu hans í a.m.k. eitt ár. Þó mega heimilismunir sem viðkomandi hefur átt í skemmri tíma vera að heildarverðmæti allt að 140.000 kr. að smásöluverði á innkaupsstað án nokkurs frádráttar á sköttum vegna útflutnings. Fjárhæð þessi gildir fyrir hvern fjölskyldumeðlim sautján ára og eldri en helmingi lægri fjárhæð fyrir þá sem yngri eru. Við ákvörðun verðmætis einstakra hluta skal leggja til grundvallar reikninga og kvittanir þar sem verð hluta er tilgreint. Séu slík gögn ekki tiltæk skal miðað við smásöluverð sams konar eða svipaðra hluta í verslun hér á landi.
  • Viðkomandi hafi muni þessa með sér er hann flytur búferlum eða flytji þá innan sex mánaða frá því hann tók sér bólfestu hér á landi eða öðlast hér lögheimili. Tollstjóri getur þó veitt undanþágu frá þessu ákvæði ef sérstaklega stendur á, svo sem ef dvöl manns hér hefur upphaflega verið ákveðin einungis til skemmri tíma en framlengist síðan til varanlegrar búsetu.
  • Viðkomandi gefi skriflega skýrslu við tollafgreiðslu munanna, um að skilyrðum samkvæmt framangreindu sé fullnægt og munirnir séu fluttir inn eingöngu til nota á heimili hans hérlendis.

Eftirfarandi vörur teljast ekki til heimilismuna í skilningi þessarar greinar:

  • Búnaður, vélar eða tæki sem innflytjandi flytur með sér og notaður er við atvinnurekstur hans eða fjölskyldu hans.
  • Vélknúin ökutæki, svo sem bifreiðar, bifhjól, beltabifhjól, vélbátar, flugvélar og farartæki eins og seglbátar, svifflugur, svifdrekar og þess háttar.
  • Áfengi og tóbak.

Nánari upplýsingar um búslóðir

Aftur upp

Endursendar vörur

Vörur sem endursendar eru hingað til lands frá útlöndum vegna þess að þær seldust ekki þar eða endursendar eru hingað frá útlöndum af öðrum orsökum eru undanþegnar aðflutningsgjöldum.

Einnig vörur sem eru sendar til útlanda til viðgerðar á ábyrgðartíma samanber 10. grein Tollalaga.

Skilyrði undanþágu eru:

  • Að sannað sé að mati tollyfirvalda að um sé að ræða vörur útfluttar héðan.  Útflytjandi skal leggja fram útflutningsskýrslu og önnur gögn sem bera með sér að varan hafi fengið tollafgreiðslu vegna útflutnings.  Sama á við um endursendar tómar umbúðir eftir því sem við getur átt.
  • Vörurnar séu fluttar til landsins á ný innan eins árs frá útflutningsdegi.

Undanþágan nær til eftirtaldra vara:

  1. Vörur sem fluttar hafa verið héðan úr landi til sölu, en eru síðar endursendar til landsins vegna þess að þær seldust ekki erlendis eða af öðrum orsökum.
  2. Vörur sem óskattskyldir aðilar hafa sent úr landi en fá endursendar frá útlöndum, enda hafi aðflutningsgjöld ekki verið endurgreidd af þeim við útflutning héðan.
  3. Vörur sem sendar hafa verið tímabundið til sýningar erlendis, enda hafi þess verið getið í útflutningsskýrslu og beiðni um skoðun vörunnar við útflutning hver áætlaður endursendingartími þeirra væri.
  4. Tæki, verkfæri og annað þess háttar sem vísindamenn, björgunarleiðangrar og aðrir slíkir hafa tímabundið meðferðis til útlanda til nota við athuganir sínar, rannsóknir og starfsemi, enda hafi þess verið getið í útflutningsskýrslu og beiðni um skoðun vörunnar við útflutning hver áætlaður endursendingartími þeirra væri.
  5. Bifreiðar og bifhjól svo og önnur farartæki sem aðilar flytja með sér til útlanda til tímabundinna nota þar, enda hafi þeim verið framvísað við tollgæsluna til skoðunar við útflutning og jafnframt verið gerð grein fyrir þeim á þar til gerðu eyðublaði.
  6. Vara send til útlanda til viðgerðar á ábyrgðartíma.

Aftur upp

Endursendar tómar umbúðir

Tómar umbúðir sem endursendar eru hingað til lands frá útlöndum eru undanþegnar aðflutningsgjöldum, enda séu að mati tollyfirvalds færðar fullnægjandi sönnur fyrir því að um sé að ræða umbúðir utan af vörum útfluttum héðan.

Skilyrði undanþágu eru:

  • sannað sé að mati tollyfirvalda að um sé að ræða tómar umbúðir útfluttar héðan.  Útflytjandi skal leggja fram útflutningsskýrslu og önnur gögn sem bera með sér að varan hafi fengið tollafgreiðslu vegna útflutnings. 
  • Umbúðirnar séu fluttar til landsins á ný innan eins árs frá útflutningsdegi.

Undanþágan nær til eftirtaldra vara:

  1. Tómar umbúðir sem fluttar hafa verið héðan úr landi til sölu, en eru síðar endursendar til landsins vegna þess að þær seldust ekki erlendis eða af öðrum orsökum.
  2. Tómar umbúðir sem óskattskyldir aðilar hafa sent úr landi en fá endursendar frá útlöndum, enda hafi aðflutningsgjöld ekki verið endurgreidd af þeim við útflutning héðan.
  3. Tómar umbúðir sem sendar hafa verið tímabundið til sýningar erlendis, enda hafi þess verið getið í útflutningsskýrslu og beiðni um skoðun vörunnar við útflutning hver áætlaður endursendingartími þeirra væri.

Aftur upp

Erfðagripir

Notaðir munir sem hafa fallið í arf erlendis eru undanþegnir aðflutningsgjöldum.

Undanþágan tekur þó ekki til ökutækja eða annarra vélknúinna farartækja.

Skilyrði undanþágu er að arfþegi sýni með fullnægjandi hætti fram á að honum hafi tæmst arfur erlendis, til dæmis með framlagningu vottorðs skiptaráðanda þar um.

Ferðanauðsynjar hér búsettra manna sem látist hafa erlendis skulu jafnframt undanþegnar aðflutningsgjöldum.

Aftur upp

Farangur ferðamanna

Allur venjulegur farangur ferðamanna sem koma hingað til lands frá útlöndum er tollfrjáls, enda sé að mati tollyfirvalda um ferðanauðsynjar til eigin nota þeirra á ferðalaginu að ræða.

Nánari upplýsingar um tollfrjálsan farangur ferðamanna

Aftur upp

Gjafir

Í ákveðnum tilvikum þarf ekki að greiða tolla og gjöld af gjöfum sem sendar eru til landsins. 

Gjafir sendar af sérstöku tilefni

Gjafir sem einstaklingar búsettir erlendis hafa með sér eða senda hingað til lands af sérstöku tilefni, þó ekki í atvinnuskyni, eru undanþegnar aðflutningsgjöldum að uppfylltum eftirfarandi skilyrðum:

  1. Að verðmæti gjafar samkvæmt framlögðum reikningi sé ekki meira en 13.500 kr. Fylgi reikningur ekki vörusendingu áætlar Tollstjóri verðmætið með hliðsjón af líklegu smásöluverði á innkaupsstað. Sé verðmæti gjafar meira en 13.500 kr. eru aðflutningsgjöld reiknuð að því marki sem verðmætið er umfram þá fjárhæð. Brúðkaupsgjafir eru undanþegnar aðflutningsgjöldum þótt þær séu meira en 13.500 kr. að verðmæti, enda sé að mati Tollstjóra um eðlilega og hæfilega gjöf að ræða sem flutt er inn eigi síðar en 6 mánuðum frá brúðkaupi.
  2. Að viðtakandi sýni fram á að um gjöf af sérstöku tilefni sé að ræða. Gjafir vegna afmælis, brúðkaups, jóla eða fermingar teljast meðal annars vera gjafir af sérstöku tilefni í þessu sambandi.
  3. Að sending beri með sér að um sé að ræða gjöf frá gefanda búsettum erlendis og að tengsl séu á milli hans þess sem gjöfina fær.
  4. Sé ljóst af fylgiskjölum eða samsetningu gjafasendingar að hún sé ætluð tveimur eða fleiri og gjöfunum hafi eingöngu af hagkvæmnisástæðum eða vegna tilefnis sendingar verið pakkað saman til flutnings er gjöf til hvers og eins talin sjálfstæð gjöf við mat á því hvort gjöfin teljist innan verðmætamarka.

Undanþága aðflutningsgjalda samkvæmt framangreindu tekur hvorki til áfengis né tóbaks.

Aftur upp

Gjafir til mannúðar og líknarstarfsemi


Tæki, búnaður og aðrar fjárfestingarvörur sem mannúðar- og líknarstofnanir fá að gjöf eru undanþegin aðflutningsgjöldum, enda sé um að ræða vöru sem nýtt er beint til viðkomandi starfsemi.

Gjafir sem sendar eru hingað frá útlöndum og góðgerðarstofnanir eða aðrir slíkir aðilar eiga að annast dreifingu á til bágstaddra eru undanþegnar aðflutningsgjöldum.

Aftur upp

Eftirtaldir aðilar geta nýtt sér framangreinda undanþágu:

  1. Rauði kross Íslands og einstakar deildir hans, slysavarnarfélög og hjálpar- og björgunarsveitir.
  2. Sjúkra-, umönnunar- og meðferðarstofnanir, dvalar- og vistheimili, sambýli fyrir fatlaða, greiningarstöðvar, öldrunarstofnanir og aðrar stofnanir í hliðstæðri starfsemi.

Undanþágan tekur til neðangreindra tækja og búnaðar:

  1. Tækja og áhalda sem notuð eru til lækninga og sjúkdómsgreininga.
  2. Tækja sem notuð eru til endurhæfingar vegna sjúkdóma og slysa.
  3. Annarra tækja sem notuð eru á stofnunum sem taldar eru upp hér að ofan, við endurhæfingu eða í þágu sjúklinga og vistmanna.

Skilyrði undanþágu samkvæmt framangreindu eru eftirfarandi:

  1. Leggja þarf fram, við tollafgreiðslu, skriflega yfirlýsingu gefanda um gjöfina og tilgang hennar, ásamt staðfestingu gjafþega um að hún verði nýtt í viðkomandi starfsemi.
  2. Ekki mega vera fjárhagsleg tengsl á milli gefanda og þiggjanda gjafar.

Aftur upp

Gjafir erlendis frá á grundvelli menningar- eða vináttutengsla við erlend ríki

Gjafir sem ríki, sveitarfélögum eða opinberum stofnunum eru gefnar erlendis frá í vináttuskyni eða á grundvelli menningartengsla við erlend ríki eru undanþegnar aðflutningsgjöldum.

Skilyrði undanþágu frá aðflutningsgjöldum er að fylgiskjöl sendingar eða önnur gögn beri skýrt með sér að um sé að ræða gjöf og að fyrirsvarsmaður á vegum gjafþega staðfesti viðtöku gjafar.

Aftur upp

Heiðursmerki og verðlaun

Heiðursmerki og verðlaun sem innflytjandi hefur unnið til erlendis og veitt eru af erlendum ríkjum, svo og verðlaun fyrir vísindastörf, íþróttaafrek og önnur afrek sem unnin eru erlendis eru undanþegin aðflutningsgjöldum.

Eftirtalin heiðursmerki og verðlaun falla undir heimildina:

  • Sérstakir verðlaunagripir, svo sem styttur, verðlaunapeningar og þess háttar
  • Önnur verðlaun, enda sé tollverð þeirra ekki meira en 100.000 kr.

Skilyrði undanþágu eru:

  • Að innflytjandi sýni með fullnægjandi hætti fram á að um sé að ræða heiðursmerki eða verðlaun sem hann hefur unnið til erlendis vegna tiltekinna afreka eða frammistöðu.

Undanþága nær ekki til verðlauna sem veitt eru í happdrættum, getraunum eða sem liður í söluátaki.

Aftur upp

Markaðssetning og vöruþróun

Sendingar vegna markaðssetningar og vöruþróunar eru undanþegnar tolli í eftirtöldum tilvikum:

  • Sýnishorn verslunarvara og auglýsingaefnis, enda sé verðmæti sendingar óverulegt. Jafnframt sýnishorn verslunarvara sem gerð hafa verið ónothæf sem almenn verslunarvara.
  • Hugbúnaðargögn sem send eru án endurgjalds og ætluð eru til þróunar eða hönnunar hugbúnaðar, prófunar, leiðréttingar, uppfærslu eða eru eingöngu nothæf til kynningar.
  • Verðlaus bréf, bæklingar og prentuð gögn sem ekki hafa neitt viðskiptalegt gildi og ekki eru fallin til endurdreifingar.

Undanþágan nær ekki til áfengis eða tóbaks.

Sýnishorn vöru verður að bera með sér að um sýnishorn sé að ræða og má verðmæti þess ekki vera meira en 5.000 kr.  Þó skal slík vara undanþegin aðflutningsgjöldum þótt uppgefið verðmæti sé meira, hafi varan verið gerð ónothæf sem almenn verslunarvara. 

Aftur upp

Ákvæði fríverslunar- og milliríkjasamninga

Ákvæði fríverslunar- og milliríkjasamninga sem Ísland er aðili að, geta kveðið á um niðurfellingu, lækkun eða endurgreiðslu tolls og annarra gjalda.

Sjá einnig umfjöllun um milliríkjasamninga á þessari síðu.

Aftur upp

Tímabundinn innflutningur

Tollur lækkar, fellur niður eða endurgreiðist vegna tímabundins innflutnings í eftirfarandi tilvikum:

  1. Af vörum sem sendar eru til landsins til sýningar eða flutnings um stundarsakir, enda verði þær ekki nýttar til annars.
  2. Jafnframt af vélum, tækjum og öðrum áhöldum sem eru send til landsins til reynslu um stuttan tíma.
  3. Af tækjum, verkfærum og öðrum búnaði sem vísindamenn, vísindaleiðangrar, listamenn, verktakar, björgunarleiðangrar og aðrir slíkir hafa meðferðis frá útlöndum til afnota hér við athuganir sínar, rannsóknir og starfsemi.
  4. Af vörum sem eru sendar tímabundið hingað til lands til viðgerðar eða annarrar aðvinnslu.
  5. Af vörum sem fluttar eru tímabundið hingað til lands til að fram geti farið á þeim nægileg aðvinnsla til að forða þeim frá rýrnun eða öðrum skemmdum.
  6. Af tækjum og öðrum búnaði sem fluttur er tímabundið hingað til lands vegna fundahalda, ráðstefna eða hátíðahalda.

Nánari upplýsingar um tímabundinn innflutning

Aftur upp

Vísindatæki og vísindabúnaður

Vísindatæki og vísindabúnaður sem íslenskar vísindastofnanir eða vísindastofnanir sem Ísland er aðili að kaupa fyrir styrki eða eiga kost á endurgjaldslaust frá erlendum aðilum eru undanþegin tolli og virðisaukaskatti.

Skilyrði undanþágu eru eftirfarandi:

  • Vísindastofnun skal leggja fram gögn um styrkveitingu, sé tæki keypt fyrir styrkfé.
  • Einungis skal fella niður aðflutningsgjöld að því marki sem tæki eða búnaður eru keypt fyrir styrk eða fengin að gjöf. 
  • Séu kaup á tækjum eða búnaði fjármögnuð með styrk sem veittur hefur verið til ákveðins rannsóknarverkefnis, án þess að tilgreint sé að um sé að ræða styrk til kaupa á tilteknum tækjum eða búnaði, skal fella niður aðflutningsgjöld að því leyti sem kaupverð þeirra rúmast innan fjárhæðar styrksins, enda liggi fyrir staðfesting umsækjanda á að tækjakaupin séu þáttur í hinu tiltekna verkefni. Hafi vísindastofnun fengið styrk að tiltekinni upphæð, er einungis heimilt að fella niður virðisaukaskatt sem nemur24% af heildarstyrkfjárhæðinni. Sem dæmi má nefna að hafi vísindastofnun hlotið styrk að fjárhæð kr. 100.000 og óskar eftir niðurfellingu á grundvelli hans verður ekki felld niður hærri fjárhæð en kr. 24.000 (24% af kr. 100.000).  Af þessu leiðir að hafi virðisaukaskattur hlutarins sem keyptur var verið umfram kr. 24.000, fæst umframgreiðslan ekki endurgreidd.  Einungis er heimilt að endurgreiða að þeirri fjárhæð sem virðisaukaskattur af styrknum nemur.
  • Sé um að ræða gjöf skulu ekki vera fjárhagsleg tengsl á milli gefanda og þiggjanda.
  • Tæki eða búnaður verður að nýtast með beinum hætti til rannsókna hjá vísindastofnun sem fær búnað að gjöf eða styrk til kaupa á búnaði. Aðflutningsgjöld verða ekki felld niður ef tæki eru einungis nýtt á óbeinan hátt við rannsóknir eða ef þau eru ætluð til almennra nota.

Tölvur og hugbúnaður falla því aðeins undir heimildina ef búnaðurinn er nýttur til rannsóknaverkefna.

Framangreind undanþága nær einnig til vísindatækja og vísindabúnaðar sem íslenskar vísindastofnanir eða vísindastofnanir sem Ísland er aðili að eiga kost á að fá lánuð tímabundið án endurgjalds.

Aftur upp

Síðast yfirfarið/breytt í júlí 2018

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir