Hvað má taka mikið af áfengi og tóbaki tollfrjálst inn í landið?

Sleppa leiðarkerfi
Fara heim

Hvað má taka mikið af áfengi og tóbaki tollfrjálst inn í landið?

  Sterkt áfengi Létt áfengi Bjór Tóbak
  1 lítra 0,75 lítra 3 lítra 200 stk. sígarettur eða 250 gr af öðru tóbaki
 eða: 1 lítra 0 6 lítra 200 stk. sígarettur eða 250 gr af öðru tóbaki
 eða: 0 1,5 lítra 12 lítra 200 stk. sígarettur eða 250 gr af öðru tóbaki
 eða: 0 3,0 lítra 6 lítra 200 stk. sígarettur eða 250 gr af öðru tóbaki
 eða: 0 0 18 lítra 200 stk. sígarettur eða 250 gr af öðru tóbaki

Sjá einnig töflu með fleiri mögulegum útfærslum þegar áfengi er keypt og tollfríðindi nýtt.


Sterkt áfengi er áfengi sem í er meira en 21% af vínanda að rúmmáli og léttvín er áfengi, annað en öl, sem í er minna af vínanda en 21%.

Hafi ferðamaður meðferðis meira magn af áfengum drykkjum en heimilað er getur hann flutt inn umframmagnið gegn greiðslu áfengisgjalds og virðisaukaskatts, enda hafi viðkomandi gert grein fyrir og framvísað varningnum við tollgæslu.

  • Lágmarksaldur til innflutnings áfengis er 20 ár.
  • Lágmarksaldur til innflutnings á tóbaki er 18 ár.
  • Tollgæsla getur krafist þess að lágmarksaldur sé sannaður með framvísun persónuskilríkja.

 

Meiri upplýsingar um tollfríðindi ferðamanna

Reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi 

Lög nr. 96/1995 um gjald af áfengi og tóbaki 

 

Var efnið hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Tollstjóra. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?
Ef óskað er eftir svari vinsamlega notið: Hafðu samband eða Hrós, ábendingar og kvartanir